Chloe kemur í heimsókn

Chloe sundChloe er væntanleg í heimsókn til mín n.k. miðvikudag 13. ágúst og ætlar að vera í eina viku. Hún hefur verið duglegust allra að sækja mig heim mér til ómældrar ánægju. Ef ég man rétt kom hún fyrst til mín þegar ég var á Spáni 2003 og keyrðum saman frá Barcelona til Albufeira í Portúgal og komum víða við. Hún hefur síðan komið til mín á hverju sumri nema 2006 þegar ég var á Fuerteventura en þá hittumst við á Ítalíu um haustið þegar hún kom frá Indlandi og við þvældum um allt. Til Florens, Rómar, San Marino og Feneyja svo eitthvað sé nefnt.
Hún ætlar að fara með mér í Súpersiglingu með MR ingana sem eru hjá okkur núna og svo erum við búin að plana að fara í Fiðrildadalinn til Lindos og ýmislegt fleira. Ég sendi henni msn og bað hana að senda mér innkaupalista yfir það sem hún vildi hafa í húsinu þegar hún kemur og hann var ekki langur; ávextir, frappe-mix og sojamjólk. Myndina sem fylgir hér með tók ég af henni í fyrra sumar þar sem hún lætur fara vel um sig í sjónum í Antony´s Bay - flóa Grikkjans heimsfræga Antony Quinn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband