Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Óborganleg myndi frá vini mínum í Grikklandi

Vinur minn í Grikklandi sendi mér þessa mynd í morgun og segir hana frá Rúmeníu (eða annarstaðar úr A-Evrópu. Lofar fleirum fljótlega.  Vonandi hafið þið líka gaman af þessu líka4803392j86.

"Hard work spotlights the character of people: .....

 

 

4779174dnd  

some turn up their sleeves, some turn up their noses and some don't turn up at all."

 


"The man who removes a mountain begins by carrying away small stones."

 

 

 

 

Hvernig væri að fara að byrja á þessu blessaða verkefni af alvöru?


mbl.is „Verður alltaf bara stæling"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er kominn heim í heiðardalinn

NYJæja, þá er sumarbúðunum lokið að þessu sinni og ég er kominn heim í heiðardalinn.  Útivistin varaði í fjóra mánuði að þessu sinni og þeir voru auðvitað allt of fljótir að líða.  Brottförinni frá Rhodos seinkaði töluvert og í staðinn fyrir að fara í loftið um kl. 16 á laugardeginum fórum við kl. 04 aðfararnótt sunnudagsins.  Vélin lenti fyrst á Akureyri og þar var °0 eins og veðruspáin hafði gert ráð fyrir.  Við lentum svo loksins í Keflavík um kl. 11 á sunnudeginum.  Hef aðallega sofið síðan en náði þó að vakana í morgun til að far í klippingu til Sigrúnar á Hársögu.

Núna hefur sem sagt alvaran tekið völdin og ég er kominn til starfa á skrifstofuna mína og allt að fara í fullan gang.  Töluvert bókað af námskeiðum næstu daga svo betra getur þetta ekki verið.  Meira fljótlega. 


Andri Már tekur Írland með trompi

logo primeraÞað kom ekki beinlínis á óvart þegar við fengum fréttatilkynninguna í dag um að Primera Travel Group væri búin að kaupa írsku ferðaskrifstofuna Budget Travel - frábær viðbót í "Heimsferðafjölskylduna". Budget Travel er stærsta ferðaskrifstofan á Írlandi með um 34% markaðshlutdeild þar í landi.  300.000 farþegar ferðast með Budget árlega þannig að þá er heildar farþegafjöldi Primera kominn í um 1.300.000 farþega á ári. Ekki slakt hjá422464A stráknum í Skógarhlíðinni.  Full ástæða til að óska okkur öllum til hamingju og senda góðar hamingjuóskir heim í Skógarhlíð.

ORGAN-GYLFI Á TÓNLEIKUM MEÐ KIMONO 19. SEPT. GYLFI, ÉG MÆTI.

 

109045256_lEins og heimsbyggðinni er vafalaust kunnugt hefur Gylfi minn verið upptekinn að undanförnu viða að koma á laggirnar skemmti-  hljómleikastaðnum ORGAN, sem mér skilst að hafi tekist með ágætum.  Nú las ég það áðan á síðu Popplands að tónleikar með Kimono væri í uppsiglingu og sjálfsagt að benda vinum og ættingjum og raunar landsmönnum öllum á  tónleikana því viðburður sem þessi hlýtur að teljast til meiriháttar menningarviðburðar og spurningin er, verður "Hvíta albúm" Bítlanna toppað að nýju? Ég er að sjálfsögðu mjög stoltur af syninum því sjálfur hafði ég aldrei erindi sem erfiði í tónlistinni þrátt fyrir tilraunir í marga áratugi. 

Textann, sem hér er fyrir neðan, fékk ég að láni af Popplandssíðu RUV og ég þykist vita að Óli Palli og Palli Magg og allir aðrir Pallar munu fyrirgefa mér ritstuldinn:

 

Tónleikar: Kimono, Bertel! & Dj Hero´s Trial

Hvar: Organ, Hafnarstræti 1-3, bakhús - 101 Reykjavík
Hvenær: Miðvikudaginn 19. september kl 21:00
Hversu mikið: 1000 kr

Hér er kunngjörnt að hin "virta" rokkhljómsveit Kimono hefur ákveðið
að blása til tónleika á skemmti - og tónleikastaðnum Organ,
miðvikudaginn 19. september.

260836AKimono hefur ekki komið almennilega fram á Íslandi í háa herrans tíð,
nánar tiltekið í yfir heilt ár. Þess í stað hefur sveitin skriðið
undir yfirborðið, þar sem henni líður og hvað best, og stundað
lagasmíðar og eróbikkæfingar af mikilli ákefð í hljóðveri sínu í
kjallara bakarís, þar sem hún hefur verið að vinna í nýrri breiðskífu,
þeirri fjórðu á ferlinum. Hafa þeir verið að skapa sér nýjan hljóm
eftir hinar ýmsu tilraunir til að forðast það að líkjast sér sjálfum.
Þetta er, þrátt fyrir allt, það eina sem þeim hefur mistekist. Kimono
hafa enda fyrir löngu skapað sér sinn eigin hljóm, byggðan á grípandi
en dularfullum gítarvafning þeirra Alex MacNeil og Gylfa Blöndal, við
þéttan og útsmoginn hrynjanda Kjartans Braga Bjarnasonar og Halldórs
Arnar Ragnarssonar. Sá síðastnefndi yfirgaf herbúðir Kimono á
vordögum, með það fyrir huga að gera myndlist að aðalstarfi og í hans
stað hefur Árni Hjörvar Árnason mannað bassann. Árni þessi er hvað
þekktastur fyrir að vera liðsmaður hinnar ofurvirtu en vanvirku
Future Future.

Kimono var stofnuð upp úr síðrokkssveitinni Kaktus árið 2001 og það
sama ár gáfu þeir út fjögurra laga EP plötuna "Kimono Ep", sem vakti
vonir gagnrýnenda um komu nýrra strauma í íslensku rokki.
Árið 2003 gáfu þeir svo út sína fyrstu breiðskífu, "Mineur Aggressif"
við mikið lof og var sveitin í kjölfarið tilnefnd sem bjartasta vonin
á Íslensku Tónlistaverðlaununum árið 2003.

Ekki kom annað til greina hjá Kimono-liðum en að toppa sjálfa sig og
2005 kom út skífan Arctic Death Ship við óstöðvandi og nánast óþolandi
lof gagnrýnenda. Var sú plata tilnefnd sem rokkplata ársins á Íslensku
Tónlistarverðlaununum. Botninn tók úr þegar ónefndur gagnrýnandi líkti
plötunni við Hvíta Albúm Bítlanna. Hófst í kjölfarið ráðagerð um
flótta sveitarinnar á önnur mið, enda ljóst að starfi þeirra væri
lokið hér á eyjunni okkar smáu.

Stefnan var sett á Þýskaland, en þar kom sveitin sér upp bækistöðvum í
stærsta inniflytjendahverfi Berlínar og gerði þaðan út
tónleikaferðalög, milli þess sem þeir reyndu, með góðum árangri, að
brjóta á bak aftur málaferli út af ólöglegri notkun á nafninu Kimono.
Skemmst er frá því að segja að hinir íslensku Kimono unnu að lokum.

Í Þýskalandi stjórnuðu þeir útgáfu "Arctic Death Ship" í Evrópu, en
þar var hún gefin út af Rough Trade. Fengu þeir enn og aftur mikið lof
fyrir skífuna þar á slóðum og ferðuðust grimmt víða um Evrópu og
spiluðu. Meðal áfangastaða, fyrir utan Þýskaland, voru lönd eins og
Austurríki, Sviss, England og Írland.

Eftir vel heppnaða herferð í Þýskalandi snéru Kimono heim í þeim
erindagjörðum að finna sína skapandi hlið, enda Þýskalandsdvölin verið
annasöm og ekki gefið mörg tækifæri til lagasmíða. Eftir heimkomuna
gáfu þeir út hina tilraunakenndu "Curver+Kimono" og efndu til
heljarinnar útgáfuveislu, með ljósmyndasýningu og 3 tíma
spunatónleikum í reykmettuðu gallerí. Fengu þeir langþráða útrás
fyrir "experimental" hliðina og í kjölfarið var ákveðið að hefja
lagasmíðar á fjórðu breiðskífunni. Í þetta skiptið var lagt upp með
það að gera "aðgengilega" plötu, s.s. reyna að fara eins langt frá
"Curver+Kimono" og mögulegt var.

Sú plata er enn í smíðum og er markið sett á vorið 2008 með útgáfu í huga.
Fyrsti "tíserinn" af plötunni er þegar farinn að hljóma á einhverjum
útvarpsstöðvum en þar er á ferðinni lagið "Wire." Er það einnig
fáanlegt á Grapewire:
http://www.smekkleysa.net/en/album/189

Á tónleikunum þann 19. september ætla þeir að prufukeyra nokkur ný lög
af téðri væntanlegri plötu í bland við gömul.

Einnig mun hljómsveitin Bertel koma fram en þeir hafa verið að vekja á
sér athygli fyrir afar hresst hljóðgervlarokk í anda Devo, og gáfu
þeir nýlega út 7 laga plötu sem vert er að kynna sér.

DJ Hero´s Trial, sem þrátt fyrir nafnið, er ekki plötusnúður , mun
spila afar hressandi Drone tónlist með Math ívafi. Spáið í því.

Fyrir og eftir tónleika mun DJ Múskat, fyrrverandi bassasnúður Kimono,
þeyta skífum í hausa viðstaddra og lofar hann danskennslu fyrir þá sem
fá spor þekkja.

Tenglar:

kimono: www.myspace.com/kimono
http://www.kimono.is/
http://www.smekkleysa.net/


Heim um næstu helgi úr 28° í 0°

 

Nú eru bara örfáir dagar eftir hér á Rhodos, heimflugið er næsta laugardag.  Svolítið óvenjulegt heimflug að þessu sinni. Flogið frá Diagorasarflugvelli til Akureyrar og þaðan til Keflavíkur.  Þetta er haft svona vegna þess að núna eru hjá okkur 170 menntaskólanemar frá Akureyri. 
Veðrið í september hefur verið betra en gott, það hefur "kólnað" svolítið sem þýðir að betra getur þetta ekki verið.  Ég var að skoða veðurspána heima fyrir æstu viku og það er allt útlit fyrir að þegar við lendum á Akureyri verði hitastigið 0° !  Hvað um það ég er fullur tilhlökkunar og mín bíður hellingur af verkefnum strax á mánudeginum eftir heimkomu. 

esjaÞessa dagana erum við að ganga frá og ég er byrjaður að pakka niður.  Svo eru kveðjustundirnar öll næstu kvöld.  Í kvöld með eigendum læknaþjónustunnar okkar hér á Rhodos, annað kvöld með innlendu leiðsögumönnunum sem hafa aðstoðað okkur í sumar og svo ætlum við að vera með kveðjuhóf hér í Diagorasar Strata fyrir Marios, umboðsmanninn okkar.  Við fengum lambalæri að heiman og það verður eldað á íslenska vegu með brúnuðum kartöflum, brúnni sósu, rabbabarasult, Ora-baunum og allt. Svo þarf auðvitað að kasta kveðju á ótal fleiri því hér hafa allir sem við störfum með verið okkur einstaklega hjálplegir.  Hér býr sennilega þolinmóðasta og geðprúðasta fólk í heimi. Ég kveð Rhodos með söknuði af þessum ástæðum og morgum öðrum.

Sem sagt, heimkoma laugardaginn 15. sept. kl. 22.


Daprir Norðmenn og Finnar í tangó

 

Þessi skemmtilega frétt er um norðmenn sem ætla til Rhodos en lenda í Rhodez í Frakklandi vegna z í stað s.

Í gærkvöldi fór ég á einn af uppáhalds veitingastöðunum mínum í Rhodosborg, RED.  Við hliðina á RED er norski barinn "Orginale Norske Baren"  og þar beint á móti er "Suomalainen Baari Demis" eða finnski barinn, sem ég var ákveðinn í að kíkja á eftir matinn til þess að fylgjast með Finnunum dansa tangó.  Atvikin höguðu því þannig til að ég lenti fyrst inn á norska barnum vegna þess að þjónninn kallaði í mig. Ég stoppaði ekki lengi þar vegna þess að gestir staðarins, trúlega Norðmenn, voru svo niðurdregnir að það var engu líkt.  Aumingja fólkið sem villtist til Frakklands í stað Rhodos hefur því ekki misst af miklu ef allir Norðmenn sem hér dvelja eru svona sorgmæddir. 

Á finnska barnum var staðan allt önnur, svo sem ekki mikil gleði en þarna er karaoke sem Finnarnir notuðu óspart jafnvel þó hæfileikarnir væru mis miklir og hvert einasta lag var í tangótakti og dansgólfið troðfullt af tangódönsurum með fullt af hæfileikum.  Ég fylgdist með þessari skemmtun í dágóða stund og eftir að hafa hlustað á og fylgst með "Ó Jósep, Jósep hvar er karlmannslundin" stóð ég loks upp og hélt heim á leið.


mbl.is Afdrifarík stafsetningarvilla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband