Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Vaknar alltaf glaður með kærustunni

 Úr Fréttablaðinu s.l. föstudag:

n576409751_604863_6010"Það er allt fínt að frétta af mér," segir Gylfi Blöndal, skemmtanastjóri á tónleikastaðnum Organ.

"Ég er svolítið spenntur að komast í frí en ég er á leiðinni í tónleikarferðalag með Borko og Seabear um Evrópu um miðjan september." Gylfi segir það kærkomna tilbreytingu að komast aftur upp á svið. "Nú er ég búinn að vera í heilt ár á bak við tjöldin svo að þetta verður nýtt og skemmtilegt."

Gylfi segist annars vera mjög mjúkur þessa dagana. "Ég er svo ástfanginn af kærustunni minni. Ég vakna alltaf glaður með henni," segir Gylfi.

"Hins vegar er ég afskaplega leiður yfir því að kveðja Helga Alexander vin minn sem er að flytja til Lundúna um mánaðamótin. Það er mikill missir að svona góðum félaga."

Rekstur Organ er nú kominn á annað ár og gengur vel. "Við förum spennt inn í haustið með mikið af tónleikahaldi sem endranær. Við erum orðin mjög spennt fyrir landsmóti tónlistarmanna í október, Iceland Airwaves, og hlökkum til að taka þátt í því aftur," segir Gylfi og bætir við að þetta sé líka "skemmtilegasta tónlistarhelgi ársins."

Tónlistarspurningakeppnin Poppkviss hefst á ný í haust. "Keppnin gekk svo vel að við verðum að halda henni áfram."


Velkomnir heim - haldboltahetjur heimsins

Sómi Íslands í sókn og vörn!!!!
mbl.is Ólympíufararnir lentir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir vinir í heimsókn

Góðir vinir á góðri stundÓli Már og synir hans tveir Bjarki Már og Ólafur Ægir eru í heimsókn hjá mér þessa vikuna. Komu s.l. laugardag. Ungu mennirnir fórnuðu menningarnótt fyrir Rhodos og hafa í staðinn verið að taka inn Gríska menningu. Í gær komu þeir með mér í ferð um Rhodosborg og tóku sögu borgarinnar og ekki síst riddarana beint í æð. Í lok ferðarinnar snæddum við hefðbundna gríska smárétti á einni af bestu Tavernum gömlu borgarinnar.
Í gærkvöldi fórum við út að borða og hafði Bjarki Már þá á orði að þetta væri þegar orðin merkileg ferð fyrir þá þar sem engin pizza hefði enn verið borðuð. Í kvöld ætlum við að elda lambahrygg sem þeir feðgar komu með að heiman. Það verður mikil veisla fyrir mig og vonandi þá líka.

Ólafur Ragnar

Var að frétta að Ólafur Ragnar væri búinn að lýsa því yfir að hann ætlaði að veita þeim Fálkaorðuna við heimkomuna á miðvikudaginn. Þetta hlýtur að verða orðað svona í tilkynningu frá forseta: "Fyrir störf sín að íþróttamálum" !
mbl.is Ekið á vagni niður Laugaveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessa netsíðu Washingtonpost.com verða allir Íslendingar að skoða áður en þeir horfa á leikinn á morgun

    http://blog.washingtonpost.com/dcsportsbog/

 Takk fyrir sendinguna Ingi og Hrefna

icelandcelebrate1


Á þríhjói um þvera og endilanga Rhodos

Chloe á TriBike Rhodos 2008 Það var mikið að gerast hjá mér þessa viku sem Chloe var í heimsókn. Ég átti helgarfrí og við gátum því notað tímann vel og farið víða og skoðað auk þess sem við láum á ströndinni og syntum í sjónum. Við byrjuðum á siglingu frá Mandrakihöfn niður með austurströndinni til Stegna og fórum þar á land í hádegisverð og svo var siglt til baka. Það var oft stoppað á leiðinni til þess að snorkla og leika sér í sjónum. Þá fórum við til Lindos eins og ég hef sagt frá áður. Við fórum í Fiðrildadalinn og Seven Springs auk fjölda annarra staða.
Einn daginn tókum við á leigu þríhjól "TriBike" og hjóluðum um víðan völl þ.e.a.s. Chloe stjórnaði hjólinu af mikilli kunnáttusemi og ég sat eins og greifi aftaná. Þá skoðuðum við auðvitað gömlu borgina, fórum í Þjóðminjasafnið (Gamla spítalann) og margt, margt fleira. Þetta var því viðburðarrík Rhodos 2008 m Chloe 125vika þar sem við bæði skemmtum okkur konunglega.
Ég er að dunda við að setja inn myndir af og til, það tekur nokkuð langan tíma því sambandið mitt er ekkert of gott.


Íselndingar fagna á Rhodos og það gerði franski bareigandinn líka

Sá franski með spjaldiðÞið verðið að sjá þessa mynd. Rúmlega eitthundrað íslendingar sem eru í sólarfríi á Grísku eyjunni Rhodos komu saman til að fylgjast með leiknum við Spánverja þrátt fyrir að hægt væri að horfa á beina útsendingu á öllum hótelherbergjum. Spánverjar sáu aldrei til sólar í leiknum en það gerðum við í orðsins fyllstu merkingu. Franski eigandinn að Zorba´s bar var ákaft hylltur í leikslok þegar hann lyfti auglýsingaskilltinu sínu fyrir næsta leik.  Þetta var geggja - þið verðið að sjá myndina - til hamingju Ísland

 


mbl.is Íslendingar í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólinu hennar Chloe var stolið !

Chloe á GXS 250Á meðan Chloe var í heimsókn hjá mér hér á Rhodos fékk hún þær leiðinlegu fréttir að hjólinu hennar hefði verið stolið. Þetta gerðist að nóttu til en hjólið var læst á báðum hjólum þar sem það var fyrir framan húsið hennar í Newcastle - einfaldlega klippt með stórum klippum á báða lásana. Þetta er mikil sorg sem ég skil vel því þetta er fyrsta mótorhjólið sem hún eignast og hún hafði tekið miklu ástfóstri við. Hjólið er árgerð 1980 og því orðið hálfgerður safngripur og það eina eintakið af þessari gerð sem til er í Bretlandi.
Hún hefur verið dugleg að auglýsa eftir hjólinu bæði á netinu og eins út um allt og ég vona svo innilega að það komi í leitirnar sem allra fyrst. Ef einhverjir, sem lesa þetta eru búsettir í Bretlandi eða hafa þar góð sambönd mega þeir gjarnan hjálpa Chloe að fá til baka "ástina sína"

Það er ókeypis að taka myndir af asnanum

Rhodos 2008 m Chloe 061Chloe er búin að vera í heimsókn hjá mér síðan á miðvikudag og það er búinn að vera dásamlegur tími.  Á föstudagsmorgun fórum við niður til Lindos og vorum þar yfir nótt og fram á laugardag. Við vorum svo heppin að finna litla stúdíóíbúð á besta stað í bænum og nutum þess alveg í botn. Láum á ströndinni, fórum upp á Akropolis, borðuðum frábæran kvöldverð og skoðuðum næturlífið. Undir hádegi á laugardag héldum við svo aftur norður til Rhodosborgar og komum við á ýmsum áhugaverðum stöðu sem gaman var að skoða. Myndina sem fylgir tók ég af Chloe í Aþenuhofinu upp á Akropolis við Lindos. Hina myndina tók Chloe af mér (asnanum) uppi á fjallinu við Tsabika

Asninn


Rás 2 klikkar en mbl.is bjargar því sem bjargað verður

Þessi tilkynning kemur upp þegar ég ætla að hluta á beina lýsingu frá leik Íslands og Þýskalands á netinu.
Vegna tæknilegra vandamála getum við ekki boðið upp á hinn venjulega dagskrárvef. Viðgerð stendur yfir.

Ömurlegt


mbl.is Ísland fór hamförum gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband