Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Chloe kemur í heimsókn

Chloe er væntanleg í heimsókn til mín n.k. miðvikudag 13. ágúst og ætlar að vera í eina viku. Hún hefur verið duglegust allra að sækja mig heim mér til ómældrar ánægju. Ef ég man rétt kom hún fyrst til mín þegar ég var á Spáni 2003 og keyrðum saman frá...

Dísin & Dalurinn

Þessa skemmtilegu mynd fann ég á netinu og heiti myndarinnar er "Dísin & Dalurinn. Ef ég skil þetta rétt þá stendur það fyrir Valdísi Thor og Gylfa Blöndal, sem gengur gjarnan undir nafninu Dalurinn og hann kallar mig stundum "gamla Dal" Svolítið kjút og...

Ánægjuleg frétt fyrir mig og mína á visir.is um Alxheimer

Þessa góðu frétt las ég í dag á visir.is. Fréttir um ný lyf eru sífelt að birtst en ég vona svo sannarlega að þessi eigi eftir að marka tímamót. Hafa fundið lyf gegn Alzheimer sjúkdóminum Breskir vísindamenn hafa þróað lyf sem vinnur gegn...

Enn loga eldar á Rhodos - dagur 5

Skógareldarnir sem hér hafa geysað í 5 daga eru enn að hrella eyjaskeggja. Eldarnir eru á suðurhluta Rhodos í um 50 km fjarlægð frá okkur, sem öll erum á norðurendanum á eyjunni. Ásgeir Tómasson fréttamaður á RUV var með ágæta samantekt á stöðunni í...

Skógareldar á Rhodos

Slökkviliðsmenn og flugvélar frá meginlandinu hafa í dag barist við skógarelda á suðurhluta Rhodos. Lýst var yfir neyðarástandi á stóru svæði þar sem að jafnaði margir ferðamenn fara um í skoðunarferðum. Þegar ég frétti síðast hafði ekki tekist að ráða...

Fjölskyldan í fínum málum

Það er orðið allt langt síðan ég tók saman yfirlit yfir það sem mín tvístraða fjölskylda er að aðhafast um þessar mundir en þessu bloggi er einmitt ætlað að ver svona einhverskonar brú milli okkar þó svo að sá sem þetta skrifar sé nær alltaf í...

Orquestra Buena Vista Social Club spiluðu eins og englar á Rhodos.

Það var þétt setinn bekkurinn í Melina Merkouris Medival Moat Theater í gærkvöldi þar sem Kúbanarnir hreinlega fóru á kostum. Þvílík tónlist, þvílíkir snillingar, þvílík innlifun, þvílík hjartahlýja. Án nokkurs efa í mínum huga þá voru þetta 5 stjörnu...

Við verðum á undan ykkur að njóta Buena Vista Social Club

Fórum í gær og náðum okkur í miða á Buena Vista Socila Club en þau verða með tónleika hér á Rhodos þann 22. júlí, tveimur dögum á undan ykkur heima. Tónleikarnir verða í Melina Merkouri Medieval Moat Theater , sem er afar skemmtilegur tónleikastaður og...

Vægur eftirskjálfti á Rhodos í nótt

Í gær var töluverð umræða meðal íslendinganna hér hvort búast mætti við eftirskjálfta eftir stóra skjálftann í gærmorgun og ég heyrði í einum farþega sem var nokkuð uggandi. Popi ágæt vinkona okkar hér sagði okkur að fyrst aðalskjálftinn hafi verið þetta...

Ekki stóísk ró í bloggheimum

Í morgun setti ég smá skrif á síðuna mína um jarðskjálftann sem reið yfir hér á Rhodos í morgun. Þetta olli því að fjölmiðlar heima á Íslandi hafa verið í sambandi við mig til að leita frétta af ástandinu hér og þá ekki síst af íslendingum, sem hér...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband