Skógareldar í Marmaris | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 27.6.2008 | 15:32 (breytt kl. 15:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í vikunni kom út menningardagskrá Rhodosborgar sem inniheldur alla helstu menningarviðburði sumarsins. Það er óhætt að segja að nóg sé um að vera því dagskráin fyllir þrjá heilar síður. Þarna er urmull af tónleikum, konsertum og leik- og óperuverkum. Það sem gladdi mig einna helst var að sjá þarna Grísku söngkonuna Nana Moushouri og Kúbusveitina sveitina Buona Vista Social Club. Þegar ég var við nám í Bretlandi um 1970 var Nana óhemju vinsæl þar og oft talað um hana sem fallegustu söngkonu í heimi "með gleraugu". Við strákarnir vorum allir rosalega skotnir í henni enda stórglæsileg kona hér á ferðinni. Ég er alveg ákveðinn í að missa ekki af tónleikunum hennar þann 11. júlí n.k. Kúbanarnir verða hér 22. júlí og vissara að tryggja sér miða um leið og miðasalan hefst.
Vinir og fjölskylda | 20.6.2008 | 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lífið hér á Rhodos er bara dásamlegt. Um þessar mundir er dálítið heitt og hitinn á daginn fer vel yfir 30°. Þegar ég fór út að borða í gærkvöldi um kl. 21:30 stóð hitamælirinn minn í sléttum 30°. Hér hefur ekki sést ský á himni síðan við komum hingað þann 24. maí. Því var gaukað að mér að um daginn hafi Rhodos verið eini viðkomustaður íslenskra sólarlandafara þar sem veðrið var betra en gott. Þóra Katrín sagði mér t.d. að veðrið heima hjá henni á Ítalíu hafi verið hálf leiðinlegt, kalt og rigning.
Við héldum 17. júní hátíðlegan með um 100 íslendingum sem fóru í skrúðgöngu sem endaði á veitingastað þar sem allir borðuðu saman. Virkilega vel heppnað kvöld þar sem við borðuðum góðan mat, lékum íslenska tónlist og fórum í kvæðakút. Fyrri parturinn sem átti að botna var svona:
Gaman er á Grikklandsströndu
glöð þar stígum Zorbadans.
Botninn sem vann var svona:
Sækjumst eftir sætum Ajopi
oft þeir hafa sætan rass.
Aðrar sem bárust voru afar skemmtilegar en rétt er að taka fram að ekki þurfti neitt sérstaklega að fylgja reglum um bragarhátt:
Gaman er á Grikklandsströndu
glöð þar stígum Zorbadans.
Einn - tveir Mythos og Jagermæster
og kellingin má fara til andskotans.
Gaman er á Grikklandsströndu
glöð þar stígum Zorbadans.
Við skálum öll í sterkri blöndu
og stígum svo í vangadans.
Vinir og fjölskylda | 20.6.2008 | 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Las það á www.sfk.is að haldinn hafi verið borgarafundur á Seyðisfirði, þar sem samþykkt var að skora á ríkisstjórnina að breyta klukkunni eins og gert er í mörgum Evrópulöndum og að ég held í Ameríku líka. Rökin þeirra skil ég afar vel enda fæddur og uppalinn á Seyðisfirði auk þess að hafa búið þar í 10 ár eftir að ég komst á fullorðinsár. Rökin fyrir stuðningi mínum eru þessi: Ég er sammála öllum rökum Seyðfirðinga, þetta er smart "pr mál" fyrir lítið samfélag þegar flest allar fréttir snúast um versnandi efnahag og hækkun olíuverðs, klukkan mín í Grikklandi er þremur tímum á undan klukkunni á Íslandi, sem oft er frekar óþægilegt en yrði aðeins tveimur eftir breytingu. Að auki get ég nefnt að tími lífsmíns á Seyðisfirði var frábær og þaðan á ég margar af mínum bestu minningum. Seyðfirðingar, ef Geiri og Imba nenna ekki að hlusta á hugmyndir ykkar þá styð ég eindregið hugmyndina um "Seyðfirskan tíma".
Vinir og fjölskylda | 10.6.2008 | 18:18 (breytt kl. 18:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagskráin okkar er kominn í fullan gang og alltaf á mánudögum förum við í bæjarrölti í gömlu Rhodos borg og endum í stórveislu á veitingahúsinu Romeo. Við erum með hringferð um eyjuna, ferðir til Symi, til Marmaris í Tyrklandi að ógleymdu Grísku kvöldi með tilheyrandi mat, dansi og söng.
Ég er kominn með netsamband hérna heima og gríska símanúmerið mitt er +30 695 620 9957. Á fimmtudaginn var ég nýkominn heim úr vinnunni, kveikti á tölvunni minni, stillti á beina útsendingu hjá Rás 2 og nánast í sömu mund reið Suðurlandsskjálftinn yfir. Það var nokkuð ógnvekjandi að fylgjast með útsendingunni fyrstu mínúturnar en fréttafólk RUV stóð sig með mikilli prýði og á mikinn heiður skilið fyrir frammistöðuna og fagmennskuna.
Í gærkvöldi vorum við boðin í grill hjá Nektaríu vinkonu okkar og hennar manni en Nektaría er aðalleiðsögumaðurinn okkar hér á Rhodos. Yndislegt kvöld með góðri sögustund. Hitinn hér er dásamlegur, 30°+ og þá er hitinn á kvöldin svona um 20°.
Vinir og fjölskylda | 31.5.2008 | 11:25 (breytt 12.7.2008 kl. 17:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Næstum óraunveruleg veðurspá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 23.5.2008 | 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þá er komið að því að halda til Rhodos á ný og brottförin er á laugardag. Ég er fullur tilhlökkunar og tel niður mínúturnar. Ég ætla að dvelja að þessu sinni á Rhodos fram til 20. september og á örugglega eftir að njóta hverrar mínútu. Rhodos er yndislegur staður, þar sem sagan er á hverju strái. En það er ekki það eina sem heillar. Rhodosbúar eru frábært fólk - eyjaskeggjar eins og við og í raun eigum við afar margt sameiginlegt. Ekki síst það að vera "skorpufólk". Á sumrum þegar ferðamannavertíðin stendur sem hæst þá vinna þeir flestir myrkranna á milli með bros á vör og fá þekki ég jafn geðgóða, hjálpsama og dugleg þrátt fyrir mikið álag.
Það verður ekki síst skemmtilegt að hitta vin minn Marios og heyra hann hvellu tenórrödd hljóma um alla miðborgina þegar honum mislíkar eða eitthvað er um það bila að fara úrskeiðis. Ég hef sagt það áður og segi það bara aftur; "þegar Marios upphefur raust sína þá dansar Rhodos"
Ég reikna með að búa í sömu íbúðinni og í fyrra í Diagorasarstræti í bænum Ialysos, sem er í um 10 km fjarlægð frá Rhodosborg. Það er alveg dásamlegt að búa í þessum gamla og fornfræga bæ sem var á sínum tíma (fyrir stofnun Rhodosborgar) einn af þremur borgríkjum eyjunnar. Í sundinu að innganginum mínum reikna ég með að hitta gömlu hjónin sem þar búa - það verða örugglega fagnaðar fundir. Þau sitja oftast þarna úti í skugganum síðdegis þegar ég kem úr vinnunni og ósjaldan gauka þau að manni einhverju góðgæti sem þau hafa annað hvort ræktað sjálf eða frúin útbúið. Ég má til með að færa þeim eitthvað góðgæti frá Íslandi en ég hef bara ekki hugmynd um hvað það ætti að vera. Smá hangikjöt? Nei varla, verð að fá betri hugmynd.
Þóra Katrín og Hildur Ýr verða þarna líka eins og í fyrra. Betri samstarfsmenn get ég varla hugsað mér.
Ég er búinn að vera duglegur í vetur að viða að mér efni um Jóhannesar Riddarana, sem svo sannarlega settu mark sitt á Rhodos áður en tvö hundruð þúsund manna her Tyrkja náði að hrekja þá á brott og þeir settust að á Möltu og hafa síðan verið kallaðir Mölturiddarar. Nú er bara að vinna út öllu þessu efni og vera duglegur að miðla öðrum af þessari stórmerku sögu.
Ég ætla að reina að vera duglegur að blogga frá Rhodos um leið og ég verð kominn í tölvusamband. Vona að það verði sem fyrst. Þeim sem hafa áhuga á að vera í sambandi bendi ég á Skype-símann - það kostar ekki krónu.
Vinir og fjölskylda | 22.5.2008 | 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vona að félagsfræðingarnir hjá Contexts.org finni þær á vefnum og setji í þær undri "félagsfræðilega rýni". Vil gjarnan að það komi fram að Sigmund er örugglega mesti og besti húmoristi Íslands, fyrr og síðar.
Myndasaga Sigmunds gagnrýnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 20.5.2008 | 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bara góðar fréttir. Elsa fékk niðurstöður úr síðasta "skanna" í um daginn og þær eru bara mjög góðar - ekkert að sjá og ekkert að gerast. Betra getur það ekki verið og sannast nú enn og aftur að engar fréttir eru góðar fréttir. Hún fer í næstu skoðun í júlí og við gerum öll ráð fyrir að það sama verði upp á teningnum þá - vonandi. Hún er núna í sinni mánaðarlegu lyfjameðferð og gengur ágætlega. Eina sem er að valda henni erfiðleikum er að hún má ekki aka bíl, alla vega ekki næstu tvo til þrjá mánuðina og þeir sem til þekkja vita að það er ekki ákjósanleg staða í Ameríku.
Um daginn fóru krakkarnir í skólanum hennar Raquel í krabbameinsgöngu undir yfirskriftinni "LIVE STRONG" og var hún tileinkuð Elsu. Í bréfi sem Elsa sendi mér segir: "Check this out. Raquel's school is having a relay for life, which is a walk for the children to bring awareness to cancer. Her teacher thought it would be a good idea to sponsor someone with cancer on their walk and the teacher suggested me! and guess what I won! Here are the pictures of the children with their pledge signs saying who they will walk for in the relay for life(me). What an honor. Raquel was very happy and proud. I thought you would love to see it." Samstaðan og samhjálpin er enn til staðar og alveg ótrúlegt hvað samfélagið stendur vel saman þegar einhver á í erfiðleikum.
Michael Gisli for a Philadelphia Phillies Baseball, Hafnaboltaleik um helgina með ömmu sinni. Hann fékk að hitta nokkra leikmenn og einn þeirra áritaði húfuna hans. Einnig voru teknar myndir af þeim og settar a heimasíðu Phillies. Þetta er eitthvað sem ungur maður á eftir að mynnast lengi því þessir íþróttamenn er miklar hetjur og ekki á hverjum degi sem ungir menn fá slíkt tækifæri.
Vinir og fjölskylda | 19.5.2008 | 08:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinir og fjölskylda | 11.5.2008 | 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ía Jóhannsdóttir
- .
- Einar Bragi Bragason.
- Grétar Örvarsson
- Gísli Tryggvason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Magnús Ragnar Einarsson
- Morgunblaðið
- Sigurður Þorsteinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- TómasHa
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Krummi
- Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
- Óttar Felix Hauksson
- Seyðfirðingar
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skuld bókabúð
- Þórir S. Þórisson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 148064
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar