Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
Í dag er dagurinn minn. Ég ætlað að halda upp á daginn með því að hitta fjölskyldu mína, vini og samferðafólk í gegn um árin á staðnum hans Gylfa, ORGAN, milli kl. 17 og 19 og vona auðvitað að sem flestir komi og hitti mig í augnablik. Þegar ég var að alast upp austur á Seyðisfirði leyfði mamma okkur systkinunum að ráða hvað við vildum hafa í matinn á afmælisdaginn. Þetta þótti okkur rosa skemmtilegt. Ég valdi alltaf þorskhrogn og þurfti stundum að redda þeim mörgum dögum áður. Þá gróf maður þau bara í snjóskafl fyrir fram eldhúsgluggann og þar voru þau fersk og fín á afmælisdaginn. Í dag verða ekki hrogn í matinn en í staðinn valdi ég að fá vini mína úr Eindæmi í heimsókn og þeir ætla að spila með mér tvö lög í partýinu og þá gæti alveg eins verið von á Bótinni - Þokkabót. Þetta verðu ekkert smá gaman, strax kominn með fiðring í trommufótinn.
Börnin mín í Ameríku sendu mér blómvönd sem ég fékk í gærkvöldi og það gladdi mig mjög að hugsa til þeirra þegar ég vaknaði í morgun og horfði á blómin. Á sama tíma söng Chloe fyrir mig á Skypinu "happy birthday". Ekki amalegt að vakna við slíkar kveðjur. Ég er alveg viss um að þetta verður góður dagur og hlakka mikið til að hitta "fólkið mitt"
Vinir og fjölskylda | 26.2.2008 | 09:56 (breytt kl. 10:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Árleg skíðaferð okkar félaganna í SF-ALP, Seyðfirska alpaklúbbnum, gekk betur en vel. Veðrið lék við okkur og skíðafæri var eins og best verður á kosið. Við erum allir sammála um það að við höfum ekki skíðað við betri aðstæður. Allir eru heilir þó sumir hafi fengið smá byltur og í raun frekar haft gaman af en hitt.
Árleg kvöldveisla okkar var á fimmtudaginn og voru þau Halldór Guðmundsson og Anna Björnsdóttir gestir að þessu sinni og voru Önnu færðar sérstakar þakkir fyrir merkið okkar, sem hún hannaði. Þá var Theodór bróðir tekinn formlega inn í klúbbinn að lávarða sið en í stað sverðs var auðvitað notaður skíðastafur.
Sigurður Jónsson flutti mér afmælisræðu fyrir hönd félaganna og færði mér að gjöf m.a. "skakka" flösku af eðalvíni. Foringinn okkar Þorvaldur Jóhannsson fór á kostum og Adolf Guðmundsson og Sigurður Gíslason léku auðvitað stórt hlutverk eins og alltaf. Að veislu lokinni var farið niður á bar þar sem afmælissöngurinn var sunginn og nokkrir góðir slagarar teknir við mikinn fögnuð allra viðstaddra.
Við félagarnir komum allir heilir heim síðdegis á laugardag eftir eina af okkar allra bestu skíðaferðum til þessa.
Vinir og fjölskylda | 23.2.2008 | 23:03 (breytt 4.3.2008 kl. 09:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Loksins, loksins er aftur kominn miður febrúar, sem þýðir árleg skíðaferð Seyðfirska Alpaklúbbsins. Við höldum til Selva - Val Gardena á Ítalíu á morgun, laugardaginn 16. febrúar og við "strákarnir" munum væntanlega skíða sem aldrei fyrr í heila viku. Að þessu sinni ætlar Theodór bróðir að koma með okkur en hann fékk heimild til slíks í afmælisgjöf í lok árs 2006. Aðrir félagsmenn sem verða með að vanda eru foringinn Þorvaldur Jóhannsson fv. skólastjóri og bæjarstjóri og nv. framkvæmdastjóri SSA, Sigurður Jónsson verkfræðingur frá Hánefsstöðum, lögmaðurinn og útgerðarmaðurinn Adolf Guðmundsson og endurskoðandinn Sigurður Gíslason. Verkaskipting í hópnum er afar skýr; foringinn Þorvaldur ræður öllu en raunverulega er það Adolf og við hinir sem tökum allar ákvarðanir (Þorvaldur bara fattar það ekki alltaf. Besta ráðið til að draga athygli hans frá ákvarðanatökunum er að ræða svolítið um pólitík og jafnvel skjóta lausum skotum. En þetta er auðvitað aukaatriðið aðalatriðið er að við höfum óendanlega gaman af því að skíða saman, borða saman, spjalla saman og skemmta okkur saman og það hefur aldrei klikkað og það mun aldrei klikka.
Vinir og fjölskylda | 15.2.2008 | 21:27 (breytt kl. 21:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við erum búin að vera að leita lengi að möguleika á að fara í heimsókn til Haítí en án árangurs. Þá ákváðum við að taka málin í okkar hendur og fara bara á eigin vegum og láta slag standa. Við skiptum liði og við Þóra Björk 9. febrúar og Fríða Dögg og Gunnþórunn þann 10.
Það tók okkur fjórar klukkustundir að keyra að landamærunum og finna nokkuð öruggt stæði fyrir bílinn síðan bitum við á jaxlinn og réðum heimamann, sem var að sniglast þarna sem leiðsögumann. Fyrst þurfti að komast út úr Dóminíska og yfir á brúna á ánni sem aðskilur löndin og er hlutlaust svæði, sem gætt er af hermönnum frá Úrúgvæ og síðan inn í Haítí þar sem landamæranna er gætt af herflokki Sameinuðu þjóðanna ásamt hers Haítí. Þarna var mikið af skuggalegu fólki með enn skuggalegri vopn þar sem allir eru að passa upp á alla og maður finnur hvernig kraumar undir. Sameinuðu þjóðirnar eru þarna greinilega til að grípa inní ef upp úr síður.
Leiðsögumaðurinn okkar sagðist tala góða ensku en fljótlega kom í ljós að eina setningin sem hann var alveg með á hreinu var "you understand?" en stundum náðum við þó að reikna út hvað hann var að segja okkur. Hann vildi endilega láta keyra okkur 35 km inn í landið til einhvers bæjar en við afþökkuðum það og létum duga að skoða landamærabæinn Ouanaminthe og sú ákvörðun okkar reyndist góð því eftir að hafa gengið okkur upp í hné vorum við hreinlega búin að fá nóg.
Inni í miðjum bænum var stór markaður heimamanna þar sem þeir voru að selja allt milli himins og jarðar - allt notað og allt allskonar drasl - allt sem nöfnum tjáir að nefna. Mannþröngin var gífurleg og rykið og reykurinn í loftinu ásmat undarlegum daun ætlaði okkur alveg að drepa. Leiðsögumaðurinn setti klút fyrir andlitið en við höfðum ekkert svoleiðis meðferðar og létum þetta því yfir okkur ganga. Fátæktin þarna blasir allstaðar við. Hýbýli mamma eru ömurleg og flest barnanna án skófatnaðar og sum án fata. Stór bygging er í miðju bæjarins sem er að hruni komin eftir uppreisn sem þarna var gerð fyrir ekki löngu síðan. Þetta var eitt sinn lögreglustöð en er nú rústir einar. Eitt og eitt hús á stangli sýnist þó vera góður mannabústaður og í öllum tilfellum var skýringin sú að eigandi hefði Amerískt vegabréf og byggi þar líka - hreint með ólíkindum að sjá þessi hús innan um alla kofana og fátæktina. Ég má ekki gleyma að þarna sáum við líka mjög fallega byggða kaþólska kirkju en kirkjan virðist alltaf eiga peninga til að reisa glæsibyggingar þó sóknarbörnin eigi ekki bót fyrir boruna á sér og varla nógan mat til að nærast eðlilega. Flestir íbúar Haítí eru þó Vúdú trúar þar sem hið illa er dýrkað í bak og fyrir. Tungumálið þeirra er kreol en sumir tala líka frönsku þar sem Haítí var eitt sinn frönsk nýlenda.
Við vorum bæði örþreytt þegar við loksins komumst aftur yfir landamærin eftir dálítið bras og ánægð með að sjá að bíllinn okkar var í heilu lagi. Þá áttum við eftir að keyra í fjóra klukkutíma til að komast aftur til Cabarette þar sem hótelið okkar er. Mikil lífsreynsla, sem ég á ómögulegt með að koma í orð og mikill dagur að baki sem mun örugglega aldrei renna mér úr minni og vonandi lærist mér betur að meta það sem ég á og það sem ég hef að láni í þessu lífi.
Vinir og fjölskylda | 11.2.2008 | 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við byrjuðum sem sagt á að fá allskonar leiðbeiningar fyrir þetta "lífhættulega" uppátæki og síðan var að gera sig kláran með björgunarvesti, froskalappir og snorkl-græjur. Ég var hér um bil að guggna þegar ég í einskonar leiðslu fór út í laugina með skötunum. Þetta var svona til að venja okkur við. Þurftum að passa vel upp á tær og fingur því sköturnar eiga það til að "totta" mann við minnsta tilefni. Svo vorum við látin gefa þeim að borða úr hendinni og við það tækifæri var ein þeirra svo aðgangshörð við Gunnþórunni að úr blæddi.
Þá var komið að hákörlunum og nú var minn maður um það bil að fara á taugum. Ég hríðskalf af hræðslu en sagði stelpunum að mér væri svolítið kalt.
Nú kom líka í ljós að við hákarlalaugina var stórt áhorfendasvæði og fólk dreif að úr öllum áttum. Við vorum sem sagt skemmtiatriði dagsins. Ég lét mér detta í hug að kannski væri besta skemmtiatriðið að játa sig sigraðan og ganga á brott en ég eiginlega guggnaði á því líka, greip til æðri máttar og lét mig hafa það sem að höndum bar. Þegar upp var staðið voru þetta hinar vænstu skepnur og gerðu okkur ekki mein þrátt fyrir blóðugan fingur eins fararstjórans. Mér fannst bráðskemmtilegt að snorkla með þessum dýrum og reyndi að hugsa bara um kæstan hákarl á þorrahlaðborðum heima á Íslandi.
Loks var komið að höfrungunum. Þeir byrjuðu á að sýna listir sína fyrir okkur og síðan fórum við tvö og tvö í einu til að leika við einn þeirra. Ýmist dönsuðum við þá eða knúsuðum og kysstum. Lokaatriðið var svo að koma sér fyrir langt úti í laug með hendurnar beint út frá öxlunum og bíða þess að tveir höfrungar renndu sér upp að manni og þá greip maður um bakuggana og þeir rifu mann með sér á ógnar hraða þannig að kroppurinn þeytti kerlingar á vatninu. Þetta var yndislegur dagur með skemmtilegu fólki. Við vorum öll, ég Gunnþórunn, Fríða Dögg og Þóra Björk ásamt systur og mági Gunnu þeim Andreu og Brjáni, í sjöunda himni með þennan frábæra skemmtigarð þar sem líka er hægt að fara á kvöldin á "gala-kvöldverð, Vegasskemmtun og spilavíti.Vinir og fjölskylda | 11.2.2008 | 20:19 (breytt kl. 20:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við sátum þarna þrumulostin í nokkrar lotur og yfirgáfum svo svæðið þegar við höfðum fengið nóg. Mér fannst hanaslagurinn ógeðfeldur en hegðun mannfólksins áhugaverð. Sannarlega þó nokkur lífsreynsla að upplifa hanaslag við frumstæðar aðstæður í Dóminíska lýðveldinu.
Vinir og fjölskylda | 11.2.2008 | 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um daginn fékk ég tölvupóst frá vinkonu minni Þóru Katrínu á Ítalíu (Þóra vann með mér á Rhodos í fyrra sumar og við verðum þar aftur í sumar) þar sem hún segir mér frá því að Kikko, maðurinn hennar, hefði verið greindur og skorinn við sortuæxli í læri og krabbamein í eitlum. Aðgerðin tók fjórar klukkustundir og var mjög erfið. Í síðasta tölvupósti til mín segir hún að það standi til að flytja hann á annan og betri spítala þar sem framhaldið ræðst. Bæði eru þau Elsa mín og Kikko korn ung og í blóma lífsins þegar krabbinn sækir að. Elsa er bráðum 37 ára og Kikko er 40. Það er eins gott að læknavísindin sýni nú og sanni á þessu unga fólki hvers þau eru megnug. Það sem við getum gert er að vera jákvæð og bjartsýn og senda endalaust góða strauma til þeirra sem við elskum og biðja allar góðar vættir um stuðning.
Vinir og fjölskylda | 11.2.2008 | 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það hefur margt á dagana drifið síðan ég bloggaði síðast enda verið staðsettur í Karabíska hafinu og hér ganga hlutirnir svolítið öðruvísi fyrir sig en heima. Pólitíkin er að vísu í algleymingi hér í Dóminíska lýðveldinu eins og heima en maður nýtur þeirra forréttinda að vera alveg laus við að þurfa á hlusta á hana.
Forsetakosningar verða í hér í maí eins og heima og sitjandi forseti ætlar sér að ná endurkjöri eins og heima þrátt fyrir marga mótframbjóðendur. Leonel Fernandes forseti, forsætisráðherra og yfirmaður hers og lögreglu var á ferð um Puerto Plata um daginn og það voru einnig þrír starfsmenn af skrifstofu Heimsferða ásmat Gunnþórunni Bender fararstjóra. Öll voru þau að kíkja á eitt hótelanna okkar, Hote Casa Coloniel, þegar þau hittust Forsetinn, forsætisráðherrann og yfirmaður hers og lögreglu í Dóminíska lýðvelsinu og Heimsferðafólkið. Þau tóku stutt spjall saman og síða stilltu allir sér upp fyrir myndatöku. Því miður var ég staddur á næsta hóteli við hliðina ásamt hinum fararstjórunum hér og við misstum því af þessu skemmtilega augnabliki.
Síðustu daga hefur okkur gefist smá tími frá daglegum störfum til að kíkja aðeins um og skoða það sem okkur hefur langað til að skoða alveg síðan við komum hingað um miðjan desember. Fyrir nokkrum dögum fórum við á hanaslag, sem er önnur af tveimur þjóðar íþróttum hér, fyrir þrem dögum var okkur boðið í Ocean World þar sem við syntum með skörum, hákörlum og höfrungum, í fyrradag fórum við Þóra Björk og skoðuðum hellana og þjóðgarðinn í Cabarete og svo toppuðum við þetta allt í gær með því að fara í dags heimsókn til nágrannaríkisins Haítí. En meira um þetta um leið og ég er búinn að koma því á blað.
Vinir og fjölskylda | 11.2.2008 | 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ía Jóhannsdóttir
- .
- Einar Bragi Bragason.
- Grétar Örvarsson
- Gísli Tryggvason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Magnús Ragnar Einarsson
- Morgunblaðið
- Sigurður Þorsteinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- TómasHa
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Krummi
- Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
- Óttar Felix Hauksson
- Seyðfirðingar
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skuld bókabúð
- Þórir S. Þórisson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar