Ég var ekki í neitt rosa góðu skapi þegar ég loksins lét varða af því að taka til í geymslunni og henda því sem löngu er búið að þjóna þeim tilgangi að vera geymt og líka gleymt. Andlegt ástand breyttist þó fljótt þegar ég rak augun í kassa, með því sem ég hef kallað á sínum tíma "munir og minjar" og í ljós komu nokkrar gamlar ljósmyndir sem ég hélt að ég væri löngu búinn að tapa. Ég ætla að skanna inn nokkrar af þessum myndum og setja í myndaalbúm sem ég kalla bara gamlar myndir. Til gamans læt ég tvær fylgja hér með.
Fyrri myndin er að sjálfsögðu af mér sjálfum, tekin í bankanum hjá afa og ömmu
og sú síðari er frá vetrinum mínum á Siglufirði og er tekin á árshátíð Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Þar spilaði þessa sérstaka hljómsveit en við vorum allir nemendur í Tónlistarskóla Siglufjarðar þenna vetur. Kennari okkar og stjórnandi var hinn stórkostlegi Gerhard Smith. Aftan á myndina hef ég skrifað: Á árshátíð GS. Frá vinstri; Magnús Guðbrandsson (gítar), Gísli Blöndal (tenor sax), Gerhard Smith (stjórnandi) Guðbrandur Gústafsson (alto sax), Víðir Eggertsson (barinton sax), Elías Þorvaldsson (píanó) og á trommur Valgeir Sigurðsson.


Flokkur: Vinir og fjölskylda | 16.4.2008 | 14:18 (breytt kl. 14:20) | Facebook
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Ía Jóhannsdóttir
-
.
-
Einar Bragi Bragason.
-
Grétar Örvarsson
-
Gísli Tryggvason
-
Ingólfur H Þorleifsson
-
Jón Axel Ólafsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Magnús Ragnar Einarsson
-
Morgunblaðið
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
TómasHa
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Guðrún Katrín Árnadóttir
-
Hörður Hilmarsson
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Krummi
-
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
-
Óttar Felix Hauksson
-
Seyðfirðingar
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Skuld bókabúð
-
Þórir S. Þórisson
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það virðast margir bloggarar vera í tiltektarstuði. Ekki ég! Nenni ekki svoleiðis veseni en gæti verið þess virði ef maður rækist á svona perlur eins og þú hefur gert hér Gísli minn.
Ía Jóhannsdóttir, 17.4.2008 kl. 07:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.