Nú stendur yfir 9. Airwaveshátíðin og þessi umsögn byrtist í 24 stundum í morgun:
".....Kimono var næst á svið. Ég hef alltaf kunnað að meta Kimono og frammistaða hljómsveitarinnar á fimmtudaginn skrúfaði ekki niður í því. Nýja efnið hljómar mjög vel, drunginn og dauðinn er til staðar og samspil gítarleikaranna tveggja, Gylfa og Alex, er á alheimsmælikvarða." Til hamingju Gylfi og félagar, þið eruð enn einu sinni að sýna fram að þið eruð að gera frábæra hluti í tónlisinni.
Vinir og fjölskylda | 20.10.2007 | 11:02 (breytt kl. 11:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta frábæra viðtal er við Gylfa á blaðsíðu 38 í Fréttablaðinu í dag.
Tónleikastaðurinn Organ hefur slegið rækilega í gegn enda mikil þörf fyrir slíkan stað í hjarta borgarinnar. Staðarhaldari, Gylfi Blöndal, sem jafnframt er gítarleikari í rokksveitinni Kimono, er nú í óða önn að undirbúa stífa Iceland Airwaves-dagskrá í næstu viku. Gylfi var tekinn í yfirheyrslu helgarinnar.
Hver er fyrsta minningin þín? Hún er úr bæjarlæknum sem rann við hús okkar á Seyðisfirði. Ég hlýt að hafa verið 3-4 ára og var þar að leik niður með læk þegar minkur birtist mér. Pabbi mætti fljúgandi "át off nóver" galvaskur og lagði til atlögu við minkinn, mér til mikillar skelfingar. Miklu seinna eignaðist ég tvö kvikindi, afbrigði af minkum, sem gæludýr, þannig að þessi reynsla kenndi mér ekki að hræðast minka sérstaklega. Ég á líka ljóslifandi minningu frá æskuárunum á Seyðisfirði þegar hljómsveitin The Mamas & The Papas gistu heima hjá okkur í nokkra daga og brölluðum ég og Mama Cass margt saman. Það var ekki fyrr en ég var kominn á þrítugsaldur sem ég komst að því að þetta hafði verið ímyndun í öll þessi ár og The Mamas & The Papas hafði ég aldrei hitt.
Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Mickey Rourke.
Ef þú gætir valið þrjár hljómsveitir, lifandi eða dauðar, til að spila á Organ, hverjar myndir þú velja? Þeyr, Fugazi og Fleetwood Mac.
Ef þú værir ekki að vinna, hvernig myndir þú eyða deginum? Ég veit það ekki. Bara veit það ekki.
Hver er versta vinna sem þú hefur nokkurn tíma unnið við? Ég vann eitt sinn til styttri tíma í bílaþvottastöð, svona færibandsstöð, þar sem ég þurrkaði bíla inni í því sem verður best lýst sem risavöxnum hárblásara, sirka 60 bíla á klukkustund. Ég hef aldrei upplifað annan eins varaþurrk. Annars vann ég líka í nokkra daga sem krakki í Miklagarði við að blása upp blöðrur fyrir einhverja tilboðsviku og eftir þrjá tíma af blæstri var ég orðinn blár í framan og lá við yfirliði. Það var fyrst þá sem mér var bent á helíumkút sem mér hafði verið fenginn í verkið.
Fylltu í eyðuna: Það er eitthvað gruggugt við þennan gamla góða Villa. Hver hefur ekki séð vhs-myndina Good Old Willy Hunting?
Hefurðu einhvern tíma birst á skjánum? Já, í viðtali á PoppTíví með grímu fyrir andlitinu, sem Ragnar Hansson hafði gert fyrir vídeó fyrir Kimono, og hárkollu á hausnum. Ég og Alex vinur minn hræddum líftóruna úr starfsfólki stöðvarinnar enda mættum við í smink með grímurnar og neituðum að taka þær niður. Stöðin var að brjóta odd af oflæti sínu með því að bjóða einhverjum skrítnum prog-rokkurum í viðtal en við létum öllum illum látum. Ég get svarið það að liðið var skíthrætt.
Hvað veldur þér mestum áhyggjum? Gegndarlaust dráp á saklausu fólki um allan heim. Ég naga á mér neglurnar á fréttatímanum og velti fyrir mér hvenær röðin komi að mér.
Hvað, að þínu mati, er kynþokkafyllsti klæðnaður sem kona getur klæðst? Sumarkjóll úr bómull. Grrrr
Gerir fólk grín að þér fyrir eitthvað sérstakt?
Það er helst gert grín að mér fyrir frekar gloppótt minni. Ég á það til að segja sömu manneskjunni einhverja sögu tvisvar eða gleyma því á fimm mínútum að ég hafi sagt eitthvað og segi það því aftur. Svo hefur verið gert grín að mér fyrir að stíga léttan dans þegar Kimono spilar á tónleikum, og hef ég því lagt niður þá iðju.
Hvort er betra að gefa eða þiggja? Ég myndi segja að mér finnst bara bæði betra. Ég fíla samt alveg fínt að þiggja.
Hvaða frasa ofnotar þú? "Einmitt, fattarðu? og þokkalega. "Shot of Bruchatti" og "All CAPS!" koma líka sterkir inn."
Ef þú værir að fara á grímuball, í hvað myndir þú fara? Í sundskýlu páfans.
Hvaða núlifandi manneskju hatar þú og hvers vegna? Ég trúi ekki á hatur og vil meina að manneskja sem hatar sé yfirleitt verri en sú sem hún hatar. En Dick Cheney og George W. Bush skora hátt á óvildarlistanum. Björn Ingi framsóknarmaður fer líka óstjórnlega í taugarnar á mér. Sér hann enginn leggja drullu-ólöglega uppi á gangstétt þegar hann er að mæta á fund í Framsóknarhúsinu í fréttatímanum? Come on!
Ef þú gætir stýrt framtíð þinni, hvað sæir þú fyrir þér í þremur setningum?
Eftir að ég hef lokið mér af við að gera Organ að lifandi goðsögn í skemmtanalífinu myndi ég snúa mér að óhjákvæmilegri heimsfrægð Kimono. Í kjölfarið myndi ég redda þessum heimsfriði sem allir eru að tala um, taka á móti Nóbelsverðlaunum og verða fyrsti trúleysinginn sem kjörinn verður páfi. Frá Vatíkaninu myndi ég svo eyða ævikvöldinu í að leysa upp öll trúarbrögð heimsins til að tryggja eilífan heimsfrið og setja svo sjálfan mig af sem páfa og verða þar með síðasti páfinn.
Hefurðu einhvern tímann lent í ógurlegri hættu? Svo sannarlega, nokkrum sinnum. Að horfa á bíl koma akandi á 90 km hraða inn í bílsætið þitt er viðburður sem fær þig til að fara snögglega yfir helstu vonbrigði lífsins, og spyrna fótum svo ærlega í gólfið. Svo sneri ég gamla Volvonum mínum í nokkra hringi í snjóbyl á hraðbraut í New Jersey og rétt sleikti hornið á 18 hjóla trukk. Æðislegt. Það kostaði buxnaskipti á næstu bensínstöð.
Hvað er það versta sem einhver hefur nokkurn tímann sagt við þig? "Eitthvað fleira?"
Hvaða bók er á náttborðinu? Sjálfsævisaga Davids Lee Roth; Crazy From The Heat. Þetta er önnur lesning, nota bene.
Drykkurinn? Vodka, tónik og latte með vanillubragði.
Facebook eða MySpace? Gimme some space and get off my face!
Heldurðu að Britney eigi afturkvæmt?
Bíddu, er hún hótelerfinginn eða poppstirnið nærbuxnalausa? Eða eru þær sama manneskjan? Hver var spurningin?
Hvaða kvikmynd getur þú horft á aftur og aftur og aftur?
Barfly með Mickey Rourke og Faye Dunaway eftir handriti Charles Bukowskis. Ótrúlega heiðarleg mynd.
Hver er syndsamlegasta nautnin þín? Þýskt súkkulaðikex. Þeir skilja þetta sem vilja.
Hvaða lag ætti að spila í jarðarförinni þinni?
Landslide með Fleetwood Mac. Ég myndi syngja með úr kistunni.
Hvað er á döfinni hjá þér í október? Flottir tónleikar eins og Skakkamanage, Motion Boys, Ólöf Arnalds vs. Ólafur Arnalds og svo á Iceland Airwaves eftir að heimta mikla orku. Að mála eldhúsið heima er alveg inni í myndinni líka.
amb@frettabladid.is
Vinir og fjölskylda | 13.10.2007 | 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 11.10.2007 | 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Súla er flott heiman frá mér séð. Sveppurinn er, þegar þetta er skrifað, kominn í hæstu hæðir. Textinn hans Þórarins Eldjárns er líka flottur. Til hamingju öll, þetta var falleg athöfn.
![]() |
Gjöf frá John og Yoko og íslensku þjóðinni til heimsbyggðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 9.10.2007 | 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er mikið að gerast á "stóru heimili" þessa dagana. Um síðustu helgi var ég á faraldsfæti með námskeiðin mín. Byrjaði í Reykjavík á laugardeginum og var þá með fyrirlestur fyrir fagfélag skurðhjúkrunarfræðinga á Grand Hótel. Strax af því loknu varð ég að hendast vestur að Reykjanesi við Ísafjarðardjúp en þar var ég með námskeið á sunnudagsmorgninum. Eftir hádegi keyrði ég svo suður aftur í frábæru veðri og það var ekki leiðinlegt að aka niður af Þorskafjarðarheiðinni niður í Breiðafjörðinn skammt frá Bjarkarlundi. Eftir helgina var svo námskeið fyrir Securitas þannig að þessa var nokkuð annasöm helgi.
Sonja Liv fór í kirtlatöku í gær og nú bíð ég eftir að heyra hvernig hefur gengið. Mér er enn í fersku mynni þegar ég fór í svipaða aðgerð á barnadeild Landakotsspítala og þurfti þá að liggja inni í um viku tíma. Sonja Liv er hörku stelpa og verður örugglega búin að jafna sig á þessu á örfáum dögum.
Birna var að fá sér nýjan bíl í Ameríku og er voða montin. Þetta er greinilega töluvert minna farartæki en maður á að venjast þarna í vestrinu en nú er bensínið orðið dýrt þar líka svo "minna er betra"
Chloe er væntanleg heim í smá helgarfrí núna um helgina. Kemur heim á föstudagskvöld og flýgur til baka aftur á mánudag. Hún er komin á fullt í arkitektaskólanum í Newcastle og líkar rosa vel.
Vinir og fjölskylda | 9.10.2007 | 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Nú berast þær fréttir að eitt frægasta ryþmapar rokksögunnar muni dvelja á Hótel Borg í nokkra daga í upphafi októbermánaðar. Sem er gleðifregn. Vonandi verður gott veður og þeir Ringo og Paul látnir í friði. Sem ég býst alveg við enda eru þetta pensjónistar. Maður á að vera almennilegur við eldri borgara og sýna þeim tillitssemi."
Vinir og fjölskylda | 3.10.2007 | 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinir og fjölskylda | 2.10.2007 | 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Vinir og fjölskylda | 25.9.2007 | 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinir og fjölskylda | 21.9.2007 | 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig væri að fara að byrja á þessu blessaða verkefni af alvöru?
![]() |
Verður alltaf bara stæling" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | 17.9.2007 | 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Ía Jóhannsdóttir
-
.
-
Einar Bragi Bragason.
-
Grétar Örvarsson
-
Gísli Tryggvason
-
Ingólfur H Þorleifsson
-
Jón Axel Ólafsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Magnús Ragnar Einarsson
-
Morgunblaðið
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
TómasHa
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Guðrún Katrín Árnadóttir
-
Hörður Hilmarsson
-
Jón Gerald Sullenberger
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Krummi
-
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
-
Óttar Felix Hauksson
-
Seyðfirðingar
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Skuld bókabúð
-
Þórir S. Þórisson
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.7.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 148620
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar