Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
Vinir og fjölskylda | 24.11.2007 | 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elsa hafði samband við mig í gærkvöldi og sagði mér að hún hefði byrjað fyrstu lyfjatörnina á mánudagskvöld. Hún bar sig skrambi vel og sagði að ef þetta yrði ekki verra þá þakkaði hún sínu sæla. Að sjálfsögðu fylgja þessu ógleði og vanlíðan. Fyrst eftir lyfjatöku sagði hún að maginn hefði verði eins og sinueldur og hún hefði töluverðan brjóstsviða en hún er með lyf sem eiga að slá á þetta og vonandi virka þau. Eins má búast við að hún finni fyrir mikilli þreytu þegar líður á. En Elsa er hetja eins og ég sagði líka um Birnu mína um daginn þegar hún bað mig að lýsa sér í einu orði; hetja sagði ég og það á við um þær báðar. Þess má til gamans geta, þó það sé auðvitað ekkert gamanmál að lyfjaskammturinn hennar fyrir eina viku kostar um 3.500 $ og sem betur fer eru tryggingamálin þeirra í góðu lagi. Gylfi er núna úti hjá þeim systrum og segir Elsa að það sé mikil hjálp í að hafa hann. Gylfi ætlar að vera fram undir Thanksgiving og svo sjáum við til með framhaldið.
Fjölskyldan gaf mér þessa líka fínu myndavél áður en ég fór heim og myndirnar sem fylgja hér voru teknar á hana. Ástar þakkir elskurnar mínar.
Vinir og fjölskylda | 14.11.2007 | 06:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinir og fjölskylda | 10.11.2007 | 18:40 (breytt kl. 18:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég held heim til Íslands í dag með sömu vél og Gylfi kemur með. Okkur finnst að áfangasigri sé náð og full ástæða til að þakka fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið bæði að heiman frá Íslandi og eins öðrum. Margir hafa sent tölvupóst og aðrir hringt. Sérstaklega viljum við þakka fjölskyldunni okkar heima fyrir alveg ómetanlegan stuðning og bænir. Mig langar líka að nefna Fríðu Valdimars á Seyðisfirði, Þóru Katrínu á Ítalíu, Íu og Þóri í Prag, Óla Már, Ingimar, Magga Einars, Pétur Pétursson, Þröst og Klöru og blogg-vini. Orð fá því ekki lýst hve mikilvægur stuðningur ykkar hefur verið okkur öllum. Hjartans þakkir.
Vinir og fjölskylda | 10.11.2007 | 18:23 (breytt kl. 18:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinir og fjölskylda | 9.11.2007 | 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinir og fjölskylda | 9.11.2007 | 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinir og fjölskylda | 6.11.2007 | 21:31 (breytt kl. 21:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við bíðum enn eftir hringingu frá læknunum á Thomas Jefferson University Hospital. Í dag er þriðjudagur og við áttum alveg eins von á að þeir mundu hringja í gær en ekkert gerðist. Þeir hljót því að hafa samband í dag. Okkur skildist að um leið og loka niðurstöður mundu liggja fyrir yrði tekin ákvörðun um hvað gerðist næst en þetta virðist ætla að dragast eitthvað. Af hverju vitum við ekki. Þessi bið tekur töluvert á en við reynum að bera okkur vel. Krakkarnir eru í skólafríi í gær og í dag þannig að það er heldur erilsamara yfir daginn en venjulega.
Við höfum verið að lesa okkur til eins og við getum og það er af nógu að taka ef maður leitar á netinu. Hér er krækja á mjög góðan upplýsingavef http://206.71.171.170/TreatmentFAQ/ og þessi pdf. bæklingur The Essential Guide to Brain Tumors er mjög góður.
Planið hjá mér er að taka flugvélina heim á laugardag eða sömu vél og Gylfi kemur með og ég vona að það gangi eftir en þá verðum við að vera búin að fá að vita allt um framhaldið. Meira vonandi seinna í dag en athugið að nú er búið að breyta klukkunni þannig að nú munar 5 klukkustundum á okkur og tímanum heima.
Vinir og fjölskylda | 6.11.2007 | 16:25 (breytt kl. 16:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjölskyldan okkar tengist með margvíslegum hætti Bandaríkjunum. Erla flutti þangað ung að árum og bjó í New York nánast óslitið í um 18 ár. Chloe er fædd á Manhattan í desember 1981 en fluttist til Íslands tæplega 4 ára gömul. Elsa, Birna og Gylfi fóru öll vestur til Ameríku á unglingsárunum til árs dvalar og Birna var sú eina sem ekki kom aftur enda kynntist hún indælum strák David Albert og þau giftu sig í desember árið 1997. Elsa og Mike Rosenwald kynntust á Íslandi, giftu sig þar og byrjuðu sinn búskap en fluttu þaðan til Spánar og bjuggu þar í þrjú ár og þar er Victor Axel fæddur. Þaðan fluttu þau til Íslands og loks til Bandaríkjanna í nóvember árið 2000.
Birnu og Dave eignuðust son, Michael Gísli, 30. mars 1998 og þau voru að byrja að koma sér fyrir í lífinu þegar mikið áfall dundi yfir. Dave var að aka heim að kvöldlagi ásamt félögum sínum af hljómsveitaræfingu þegar ráðist var á þá og þeim viðskiptum lauk með því að Dave lét lífið. Í frétt Morgunblaðsins frá 1. maí 1999 segir:
"Ódæðismaðurinn laus gegn tryggingu. BANDARÍKJAMAÐURINN sem lést í Bristol í Pennsylvanínu á þriðjudag af völdum áverka eftir hamarshögg hét David Albert og var tuttugu og sex ára gamall. David starfaði sem tónlistarmaður og var meðlimur í rokkhljómsveitinni Plug Ugly. Eiginkona hans er íslensk, Birna Blöndal Albert, og eignuðust þau einn son, Michael Gísla."
Það fyrsta sem vakti athygli mína þegar ég kom til Birnu eftir þennan hroðalega atburð var að húsið var allt fullt af mat. Fullt af mat sem nágrannar hennar höfðu útbúið og komið til hennar með þeim skilaboðum að hún hefði um allt annað að hugsa. Ótrúlega mikill annar stuðningur kom frá allskonar fólki sem bæði þekti mikið og lítið til þeirra Birnu og Dave. Ég man vel að þá kom þessi hugsun upp í huga mínum "ÖFGAR Í AMERÍKU". Mér var samt fullljóst að allur sá mikli stuðningur sem við fundum var afar vel meintur og hann var þegin með þökkum.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta núna er að aftur er ég staddur í Bandaríkjunum og nú vegna veikinda dóttur minnar Elsu, sem gekkst undir heilaskurðaðgerð s.l. föstudag þar sem fjarlægt var óvelkomið krabbameinsæxlis. Hún kom heim af spítalanum á sunnudag fyrir viku og síðan þá hafa nágrannarnir verið að fylgjast með líðan hennar og framvindu mála og án afláts boðið fram aðstoð af öllu tagi. Síðan þá hefur ekki verið eldað í húsinu númer 218 við Stauffer Road því nágrannarnir sjá um það. Milli klukkan fjögur og fimm á hverjum degi kemur einhver þeirra færandi hendi. "Þið hafið um allt annað að hugsa en elda mat". Og þetta eru sannkallaðar veislur með öllu tilheyrandi. Nú rétt í þessu kom kvöldveislan fyrir daginn í dag. Það sem ég kalla "öfgar í Ameríku" eru auðvitað engir öfgar heldur ótrúleg samhjálp, samstaða, ástríki og náungakærleikur, sem er ekki venjulega það sem maður hugsar þegar Ameríka er nefnd á nafn heima á Íslandi árið 2007. "Maður líttu þér nær". Við erum líka afar þakklát fyrir allan þann mikla stuðning sem við njótum frá fjölskyldum okkar ogvinum. Allt þetta góða fólk hefur verið óþreytandi í að vera í sambandi við okkur, fylgjast með og styðja okkur og styrkja og fyrir það er þakkað.
Vinir og fjölskylda | 4.11.2007 | 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Birna hefur ákveði að hætta allri vinnu a.m.k. næstu mánuðina og flytja alfarið til Elsu og Mike og vera þeim til aðstoðar þangað til við sjáum hver framvindan veður. Gylfi er væntanlegur hingað laugardaginn 10. nóvember og ætlar að hjálpa til eins og hann getur og vera hér fram að Thanksgiving.
Við erum öll sannfærð um að framundan séu verkefni sem við þurfum að takast á við með jákvæðu hugarfari og bjartsýni og þá muni okkur ganga allt í haginn. Við megum heldur ekki gleyma því að hún er í eins góðum höndum og mögulegt er og sennilega með bestu lækna í heimi.
Þrátt fyrir þetta átti Elsa sinn besta dag í dag frá því í New York sunnudaginn 21. október. Fyrstu lotu er lokið með áfangasigri og við ætlum okkur sigur í öllum næstu verkefnum hver svo sem þau verða.
Vinir og fjölskylda | 2.11.2007 | 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ía Jóhannsdóttir
- .
- Einar Bragi Bragason.
- Grétar Örvarsson
- Gísli Tryggvason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Magnús Ragnar Einarsson
- Morgunblaðið
- Sigurður Þorsteinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- TómasHa
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Krummi
- Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
- Óttar Felix Hauksson
- Seyðfirðingar
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skuld bókabúð
- Þórir S. Þórisson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar