Lífið er dásamlegt á Rhodos – 100 manna þjóðhátíð.

 

Lífið hér á Rhodos er bara dásamlegt. Um þessar mundir er dálítið heitt og hitinn á daginn fer vel yfir 30°. Þegar ég fór út að borða í gærkvöldi um kl. 21:30 stóð hitamælirinn minn í sléttum 30°. Hér hefur ekki sést ský á himni síðan við komum hingað þann 24. maí. Því var gaukað að mér að um daginn hafi Rhodos verið eini viðkomustaður íslenskra sólarlandafara þar sem veðrið var betra en gott. Þóra Katrín sagði mér t.d. að veðrið heima hjá henni á Ítalíu hafi verið hálf leiðinlegt, kalt og rigning.
Við héldum 17. júní hátíðlegan með um 100 íslendingum sem fóru í skrúðgöngu sem endaði á veitingastað þar sem allir borðuðu saman. Virkilega vel heppnað kvöld þar sem við borðuðum góðan mat, lékum íslenska tónlist og fórum í kvæðakút. Fyrri parturinn sem átti að botna var svona:

Gaman er á Grikklandsströndu
glöð þar stígum Zorbadans.
Botninn sem vann var svona:                                                Fararstjórar í sínu fínasta
Sækjumst eftir sætum Ajopi
oft þeir hafa sætan rass.

Aðrar sem bárust voru afar skemmtilegar en rétt er að taka fram að ekki þurfti neitt sérstaklega að fylgja reglum um bragarhátt:

Gaman er á Grikklandsströndu
glöð þar stígum Zorbadans.
Einn - tveir Mythos og Jagermæster                                  Með starfsfólkinu á Patty´s
og kellingin má fara til andskotans.

Gaman er á Grikklandsströndu
glöð þar stígum Zorbadans.
Við skálum öll í sterkri blöndu
og stígum svo í vangadans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband