Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
Að takast á við breytingar
Hvernig bregstu við öllum þeim breytingum sem nú eiga sér stað? Reynist þér erfitt að sjá út fyrir rammann?
Til þess að nýta hæfileika okkar sem best verðum við að kunna aðferðir sem leiða okkur í átt til framfara.
Í síbreytilegu umhverfi verðum við að takast á við síbreytileg verkefni. Við verðum að þekkja styrkleika okkar og veikleika og kunnum að nýta okkur sem best þá hæfileika sem við búum yfir.
Flest erum við bundin í viðjum vanans og sjáum oft ekki út fyrir rammann - greinum ekki með jákvæðum hætti hvers við erum í raun megnug og hvernig við getum breytt aðstæðum okkur í hag.
Þetta námskeið hjálpar þér að takast á við verkefni þín í nútíð og framtíð. Þetta námskeið er um ÞIG og það hvernig ÞÚ ætlar að takast á við breytingar í lífi þínu. Það snýst líka um að sjá það jákvæða í lífinu frekar en það neikvæða. Ekki bara hvort glasið er hálf fullt eða hálf tómt heldur hvað er í glasinu!
Námsskeiðið er að hluta byggt á hugmyndum úr bókunum; Hver tók ostinn minn (Who Moved my Cheese), Yes! Attitude, Fiskur (Fish) og Change the Way You See Everything.
Á námskeiðinu lærir þú meðal annars:
Að viðurkenna og gera ráð fyrir breytingum
Að laga þig að breyttum tíma og nýta breytingarnar þér í hag
AHA formúluna
Að þú þarft að temja þér að búa til þitt eigið viðhorf og viðmót
Hvernig þú gerir þitt besta á hverjum degi
Að fas og framganga okkar skipti máli
Hvernig hægt er að hugsa jákvætt og að "Yes! Attitude" er gagnlegt á hverju sem gengur
Hvernig hægt er að "koma sér í stuð" á hverjum morgni og láta það endast allan daginn
Þetta námskeið er fyrir ALLA því ÖLL þurfum við að takast á við breytingar.
Námskeiðið er létt og hressilegt og tekur 3 klst. og byggir á fyrirlestri, hópavinnu og umræðum.
Leiðbeinandi er Gísli Blöndal, ráðgjafi, þjálfari og fararstjóri. Gísli er einn reyndasti leiðbenandi landsins með yfir 20 ára reynslu að baki og er þekktur fyrir hressilega framgöngu, lifandi og lærdómsrík námskeið.
Upplýsingar og bókanir í síma 690 7100
Menntun og skóli | 25.11.2008 | 14:47 (breytt kl. 14:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú fer að styttast í dvöl minni hér í Philadelphia að þessu sinni því ég flýg heim á morgun (laugardag) og vera mættur í hasarinn á sunnudag.
Þrátt fyrir allt þá er þetta búinn að vera mjög góður tími og það er orðið alveg ljóst að lyfjameðferð Elsu er að skila tilætluðum árangri. Hún fór í "skanna" fyrir um 10 dögum og átti svo fund með krabbameinslækninum sínum snemma í þessari viku. Niðurstöðurnar eru áfram þær sömu; allt á réttri braut. Það sem hinsvegar er að setja æ meiri strik í reikninginn eru flogaköstin. Þau valda því að hún dettur út og getur ekki tjáð sig í nokkurn tíma á eftir. Eftir köstin kemur líka mikil þreyta. Þessi köst gera engin boð á undan sér og koma stundum þegar verst stendur á. Hún er að taka lyf sem eiga að hemja þetta eitthvað en virka mis vel og hafa töluverðar aukaverkanir. Hún ætlar trúlega að taka sér hvíld frá krabbameinslyfjunum í desember en halda síðan áfram næstu sex mánuðina og taka þá nýjar ákvarðanir varðandi framhaldið.
Nú hefur loksins verið ákveðið að hún fari inn á spítala til að láta rannsaka orsakir þessa og vonandi finna þeir um leið betri lyf sem virka betur og hafa minni aukaverkanir. Hún leggst inn á spítalann í dag og reiknað er með að hún þurfi að vera þar í um viku tíma. Ekki beint besta tímasetningin þar sem ég fer heim á morgun en tengdaforeldrar hannar ætla að koma frá Buffalo og vera hér með krökkunum meðan hún er á spítalanum. Þetta er sami spítalinn og hún var á fyrir um einu ári síðan en að þessu sinni verður hún í annarri byggingu. Ég hef mjög sterka tilfinningu fyrir því að eitthvað gott komi út úr þessu og vonandi svo mikið að hún geti aftur farið að keyra því það mundi gera lífið hér á Stauffer Road svo miklu auðveldara.´
Eins og ég sagði í upphafi þá er þetta búinn að vera góður tími ekki síst vegna þess að ég hef fengið að vera með afa-börnunum mínum og þau hafa verið mér eins yndisleg eins og hægt er að hugsa sér. Sonja er búin að finna pottþéttar leiðir til að stríða mér en segir svo alltaf þess á milli að hún elski afa. Raquel er orðinn mikill vinur minn og kveður mig alltaf þegar hún fer í skólann með "höggi" (faðmlagi) og segist munu sakna afa mjög mikið þegar hann fer heim. Okkur Victori kemur líka afar vel saman. Hann er mjög stilltur og prúður strákur, djúpt hugsi og mér mjög kær. Hann og Raquel er bæði dugleg í skólanum og með topp einkunnir í öllum greinum. Heimanámið er alltaf þeirra fyrsta verk þegar þau koma heim út skólanum og ekki farið út að leika sér fyrr en því er lokið.
Birna og Michael Gísli búa í Bristol, sem er í rúmlega klukkustundar fjarlægð en eru búin að vera dugleg að kíkja í heimsókn. Eins fórum við einn sunnudaginn í heimsókn til þeirra til að kíkja á nýju íbúðina og um leið í 70 ára afmæli Peg ömmu Michaels. Hann er duglegur í nýja skólanum sínum og kennararnir eru mjög ánægðir með hann. Þau ætla að koma til okkar í kvöld og vera hér í nótt til að geta keyrt mig á JFK flugvöllinn í New York á morgun.
Það hefur líka mikið verið í gangi þennan tíma og bera hinar sögulegu kosningar þar sjálfsagt hæst. Eins vara líka Race for Hope gangan mikil upplifun. Þar voru samankomin á bilinu fimm til sexþúsund manns í þeim tilgangi að vekja athygli á sjúkdómnum heilakrabbamein og safna fyrir rannsóknum á honum. Elsa var auðvitað í hópi "survivors" en við hin í hópi ættingja og vina. Liðið okkar hét Elsa´s Vikings og við vorum öll með víkingahatta sem vöktu mikla athygli ekki síst fréttamanna. Gangan hófs og endaði við Rocky-tröppurnar frægu fyrir framan Listasafnið í Philadelphia og auðvitað tók maður smá skokk upp tröppurnar á hætti Sylvester Stallone. Þá má ég ekki gleyma Hrekkjavökunni (Halloween) sem eins og í fyrra var stórhátíð barnanna með með tilheyrandi búningum, graskerum og ótal kílóum af sælgæti.
Ég er mjög kvíðinn að koma heim í allt vesenið sem ég hef þó fylgst með af og til. Hér er umræðan og ástandið í allt öðrum gír og í raun óhætt að segja að töluverð bjartsýni sé ríkjandi. Mike vinnur hjá fyrirtæki sem heitir Comcast og er stærsti dreifingaraðili á sjónvarpsefni, síma- og netþjónustu hér á austurströndinni og hjá því fyrirtæki eru breytingar eins og hjá flestum öðrum. Honum var tilkynnt í fyrradag að hann ætti að taka að sér fleiri og flóknari verkefni á næstu mánuðum sem eru góðar fréttir og þýða að hann er eins öruggur í sínu starfi og hægt er að vera.
Nú er bara að bíta á jaxlinn og koma sér heim á klakann og vona að þetta reddist allt saman.
Vinir og fjölskylda | 14.11.2008 | 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á Alþingi er eins og fyr
ekki mikil glæta.
Mundi ekki meira skyr
mega úr þessu bæta.
Höfundur: Benedikt Gíslason frá Hofteigi
Hér meiti skáldið ekki "að borða skyr.is", sem hefði í sjálfu sér verið ágæt hugmynd, heldur orti hann þetta í tilefni af atburði sem átti sér stað við þingsetningu 1972.
Vinir og fjölskylda | 11.11.2008 | 17:32 (breytt kl. 17:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er langdýrasta kosningabarátta hingað til (eins og raunar í hverjum kosningum) og lauslega reiknað eru frambjóðendur að verja sem nemur 6 $ fyrir hvert atkvæði. Obama er þar með höfuð og herðar yfir McCain og hafa auglýsingarnar hans í sjónvarpinu yfirgnæft nánast allt annað. Þetta eru ógnar háar upphæðir ef við reiknum þær á genginu í dag eða nálægt 800 krónum íslenskum.
Starbucks kaffihúsakeðjan (sem auglýsir sjaldan eða aldrei) hefur látið þau boð út ganga að allir sem þangað koma í dag og segjast hafa kosið fái frítt kaffi. Þetta myndum við á Íslandi kalla "kosningakaffi".
Hér loka kjörstaðir klukkan átta í kvöld en ekki fyrr en klukkan eitt í nótt (að okkar tíma ET) í Alaska, heimaríki Palins. Þrátt fyrir allar spár er víst að þetta verður bæði sögulegur og spennandi kjördagur sem örugglega verður skráður í allar sögubækur komandi kynslóða.
Vinir og fjölskylda | 4.11.2008 | 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinir og fjölskylda | 1.11.2008 | 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ía Jóhannsdóttir
- .
- Einar Bragi Bragason.
- Grétar Örvarsson
- Gísli Tryggvason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Magnús Ragnar Einarsson
- Morgunblaðið
- Sigurður Þorsteinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- TómasHa
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Krummi
- Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
- Óttar Felix Hauksson
- Seyðfirðingar
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skuld bókabúð
- Þórir S. Þórisson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar