Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Vinir og fjölskylda | 24.12.2007 | 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skjótt skipast veður í lofti sagði veðurfræðingurinn. Á miðvikudag held ég til Kúbu og ætla að vera þar við störf næstu tvær vikurnar. Ekki svo að skilja að ég ætli að aðstoða Kastró við að fresta jólunum öðru sinni, heldur ætla ég að aðstoða fararstjóra Heimsferða við að þjóna íslenskum ferðamönnum, sem þar dvelja og ætla trúlega að halda jólin á réttum tíma á Íslandi. Á Kúbu verð ég til 18. desember og held þá til eyjunnar Hispaniola, þar sem ríkin tvö Haiti og Dóminíska lýðveldið deila landi. Dóminíska 2/3 hluti eyjunnar og Haiti 1/3. Þangað koma fyrstu farþegar Heimsferða þann dag og reiknað er með að um 400 íslendingar dvelji þar um jólin.
Það var Kristófer Kólumbus, sem kom fyrstur Evrópumanna til eyjunnar þann 5. desember árið 1492 og þegar hann koma þangað ári síðar gerði hann hana að spánskri nýlendu. Höfuðborg Dóminíska lýðveldisins er á suður strönd inni og heitir Santo Domingo eftir heilögum Dominik (Saint Dominic). Íbúar landsins eru rétt innan við 10 milljónir, tala spænsku og eru flestir kaþólskir.
Hótelin okkar eru á norður hluta eyjunnar, á Playa Dorada ströndinni skammt frá Puerto Plata. Nafnið þýðir "silfurhöfn" og sagan segir að Kristófer Kólumbus hafi gefið bænum nafnið er hann sá pálmablöðin í hlíðinni glitra sem silfur í sólskininu er hann sigldi inn í höfnina.
Í Dóminíska lýðveldinu verða sem sagt jólum og áramótum fagnað að þessu sinni. Engar rjúpur, ekkert hangikjöt, ekkert malt og appelsín og örugglega ekki hvít jól. En vafalítið kemur eitthvað annað gott í staðinn "en hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. En eitt er víst að alltaf verðu ákaglega gaman þá".
Vinir og fjölskylda | 1.12.2007 | 12:01 (breytt kl. 12:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ía Jóhannsdóttir
- .
- Einar Bragi Bragason.
- Grétar Örvarsson
- Gísli Tryggvason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Magnús Ragnar Einarsson
- Morgunblaðið
- Sigurður Þorsteinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- TómasHa
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Krummi
- Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
- Óttar Felix Hauksson
- Seyðfirðingar
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skuld bókabúð
- Þórir S. Þórisson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar