Ég var ekki fyrr komin heim en framsóknarmaðurinn Björn Ingi stóð ljóslifandi í sjónvarpinu og sagðist vera með heilu hnífasettin í bakinu (þeir kasta hnífum sem eiga þá). Um þetta snerist mikil umræða, væntanlega til að reyna að ná fjandans kutunum úr bakinu á manninum.
Því verki var örugglega ekki lokið þegar allt ætlaði vitlaust að verða í borgarpólitíkinni. Nýr meirihluti varð til á hálftíma þrátt fyrir leynilegar viðræður í marga dag og nú er kominn nýr borgarstjóri og þá um leið nýr meirihluti í borginni. Læknirinn (sem líka var sjúklingur) og frændi vinar míns er orðinn borgarstjóri í Reykjavík. Hann var einu sinni í sama stjórnmálaflokki og ég og hann hefur einu sinni sprautað mig gegn flensu en sú sprauta klikkaði, sjaldan eða aldrei fengið eins hundleiðinlega flensu.
Umræðan um þetta brölt á örugglega eftir að verða drepleiðinleg alveg eins og mér er sagt að umræðan um skipan Þorsteins Davíðssonar sem dómstjóra hafi líka verið drepleiðinleg. Þorsteinn er ágætur, þekki hann og hef unnið með honum að góðum málum
Það er því ágætt að vera aftur á útleið og sleppa við allar þessar leiðinda umræður sem hellast yfir þjóðina eins og flensa sem sprautur læknisins hafa ekki unnið á.
Ég kem aftur heim þann 15. febrúar og fer svo sólarhring seinna á skíði til Ítalíu með vinum mínum í SF-Alp. Þar verður engin leiðinda umræða í gangi bara eldheitar umræður um allt og ekki neitt þar sem menn takast á af fullum kröftum í þeim tilgangi einum að skemmta sér og öðrum. Engir hnífar í bakið, ekkert kjaftæði, bara kjafturinn og klofið eins og kerlingin sagði. En um fram allt verður skíðað, skíðað og aftur skíðað.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | 21.1.2008 | 22:21 | Facebook
Um bloggið
Gísli Blöndal
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Ía Jóhannsdóttir
- .
- Einar Bragi Bragason.
- Grétar Örvarsson
- Gísli Tryggvason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Magnús Ragnar Einarsson
- Morgunblaðið
- Sigurður Þorsteinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- TómasHa
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hörður Hilmarsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Krummi
- Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
- Óttar Felix Hauksson
- Seyðfirðingar
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skuld bókabúð
- Þórir S. Þórisson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þetta er ekki einleikið þarna uppi á Íslandi. Jói Hólm (fréttablað) hringdi í Þóri þar sem við vorum að passa litlu Elmu Lind og færði okkur fréttirnar af nýja borgarstjóranum. Sem sagt nú er sjúklingur sestur í stólinn, sagt er að hann geti ekki setið nema hálfan fund þá er honum öllum lokið andlega og líkamlega.
Láttu okkur vita hvort þú hefur á réttu að standa með stelpurnar í Dómó
Skemmtu þér svo vel á skíðum og farðu varlega í brekkunum.
Ía Jóhannsdóttir, 21.1.2008 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.