Yfir 40.000 flettingar

40.000Ég sé á teljaranum mínum að ég er í dag kominn með yfir 40.000 flettingar á þessari bloggsíðu. Þessi tala segi í sjálfu sér ekki mikið en mér sýnist þetta vera þó nokkuð þar sem ég er í sjálfu sér ekki að skrifa neitt sérstakt, sem vakið gæti áhuga annarra en minna nánustu.  Ástæðan fyrir því að ég set annað slagið inn færslur er auðvitað sú að mín elskulega fjölskylda er búsett út um allar koppa grundir. Stelpurnar Elsa og Birna í Ameríku, Chloe í Englandi og Gylfi hér heima. Sjálfur er ég á sífeldu flakki var mestan partinn af liðnum vetri í Karabíahafinu og í næsta mánuði fer ég til Rhodos til sumardvalar. Þetta ágæt leið til að leyfa mínu fólki að fylgjast með mér og mínum. Ég fæ ekki mikið af athugasemdum við bloggfærslurnar en þær eru auðvitað góð leið fyrir mitt fólk til að lofa mér að heyra frá þeim og við það mættu þið vera duglegri. Með von um að lesendur mínir hafi það gott kveð ég að sinni

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband