Gleðilegt nýtt ár í Karabískahafinu

Sendi öllum ættingjum mínum og vinum góðar áramótaóskir héðan frá Dóminíska lýðveldinu.

Það er heldur að lengjast í mér hérna niðurfrá. Chloe fór til englands þann 29. des. og Erla fór heim til Íslands þann 30. des. og lenti heima á gamlársdag.  Árið byrjaði ekki mjög vel hjá okkur þar sem á nýjársnótt kviknaði í bílageymslunni okkar. Mér skilst að bíllinn hennar hafi sloppið en við vitum ekki enn hvort einhverjar skemmdir hafi orðið á dóti sem við erum með þar í geymslu.

Núna er áætlað að ég komi heim þann 19. jan. en reynslan hefur kennt mér að það getur breyst á síðustu stundu en þetta er alla vega áætlunin nú um stundir.

Góðar kveðjur til allra sem þetta lesa 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Gott að heyra frá þér kæri vinur.  Já við vitum ekki hvert leið okkar liggur á nýju ári en vonandi hittumst við og getum knúsað hvort annað.  Bestu kveðjur frá okkur Þóri til ykkar allra hvar sem þið eruð í heiminum.

Ía Jóhannsdóttir, 4.1.2008 kl. 22:04

2 identicon

Gleðilegt ár sömuleiðs, elsku pabbi minn.  Það er alveg voðalega gott að heyra aðeins frá þér. 

 Bestu kveðjur af Eiríksgötunni,

Gylfi

Gylfi Blöndal (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband