Daprir Norðmenn og Finnar í tangó

 

Þessi skemmtilega frétt er um norðmenn sem ætla til Rhodos en lenda í Rhodez í Frakklandi vegna z í stað s.

Í gærkvöldi fór ég á einn af uppáhalds veitingastöðunum mínum í Rhodosborg, RED.  Við hliðina á RED er norski barinn "Orginale Norske Baren"  og þar beint á móti er "Suomalainen Baari Demis" eða finnski barinn, sem ég var ákveðinn í að kíkja á eftir matinn til þess að fylgjast með Finnunum dansa tangó.  Atvikin höguðu því þannig til að ég lenti fyrst inn á norska barnum vegna þess að þjónninn kallaði í mig. Ég stoppaði ekki lengi þar vegna þess að gestir staðarins, trúlega Norðmenn, voru svo niðurdregnir að það var engu líkt.  Aumingja fólkið sem villtist til Frakklands í stað Rhodos hefur því ekki misst af miklu ef allir Norðmenn sem hér dvelja eru svona sorgmæddir. 

Á finnska barnum var staðan allt önnur, svo sem ekki mikil gleði en þarna er karaoke sem Finnarnir notuðu óspart jafnvel þó hæfileikarnir væru mis miklir og hvert einasta lag var í tangótakti og dansgólfið troðfullt af tangódönsurum með fullt af hæfileikum.  Ég fylgdist með þessari skemmtun í dágóða stund og eftir að hafa hlustað á og fylgst með "Ó Jósep, Jósep hvar er karlmannslundin" stóð ég loks upp og hélt heim á leið.


mbl.is Afdrifarík stafsetningarvilla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband