Fæðingarstðaur pabba; Glaumbær í Langadal

Pabbi við Glaumbæ í LangadalGlaumbær í Langadal kom líka við sögu á ferð okkar norður í land um síðustu helgi.  Ég man eftir því þegar ég einhverju sinni keyrði með pabba alla leið frá Seyðisfirði til Reykjavíkur og við fórum um Langadal í Húnavatnssýslu, sýndi hann mér stað þar sem hann sagðist hafa verið fæddur á.  Staðurinn var mér löngu gleymdur og nú var loksins tækifæri á að láta pabba sýna mér þennan stað aftur.  Bæjarhúsin eru horfin en etir standa nokkrar trjáhríslur sem vaxið hafa undir bæjargaflinum.  Staður þessi er ekki alllangt frá Geitaskarði, aðeins nær Blönduósi. Við stoppuðum þarna smá stund og tókum nokkrar myndir svo ég mundi nú örugglega þekkja þetta næst þegar ég færi þarna um. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband