Ég fer aldrei síðustu ferðina og skíða ekki undir áhrifum áfengis

Skíðamaðurinn GísliÞetta eru ekki góðar fréttir. Við félagarnir í SF ALP ákváðum þegar við vorum í Selva um daginn að næsta vetur ætlum við að skíða með hjálma og reiknum fastlega með að reglur um slíkt komnar innan tveggja ára. Nú eru í gildi reglur um að börn innan 14 ára skuli hafa hjálm en auðvitað dugar það ekki. Ég kaupi alveg þessa skýringu Svíans að carving-skíðin eigi sinn þátt í þessari aukningu. Það er einfaldlega mikið léttara að skíða á þeim en "gömlu" skíðunum.
Ég hef sloppið blessunarlega við öll skíðameiðsl allan minn skíðaferil. Ég hef líka afar einfaldar reglur um mína skíðamennsku: Skíða aldrei hraðar en ég ræð fullkomlega við. Ég skíða aldrei undir áhrifum áfengis og ég fer aldrei síðustu ferðina þ.e.a.s. þegar ég er farinn að finn til þreytu, sem takmarkar getu mína til að skíða þá skíða ég beinustu leið heim á hótel.
Ég er ekki í vafa um að hraði, áfengi og þreyta eiga mikinn þátt í skíðaslysum og það er afar einfalt að koma í veg fyrir slík slys. Og hana nú!
mbl.is Skíðaslysum fjölgar í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband