Guðmundur frændi minn er látinn

Guðmundur GíslasonÞað var erfitt að koma heim í morgun eftir 6 vikna dvöl í Karabíska hafinu.  Þegar ég fletti Morgunblaðinu um hádegisbil í dag sá ég að Guðmundur frændi minn Gíslason hafði látist þann 2. janúar s.l.  og jarðarförin farið fram 10. janúar.  Mér þótti mjög sárt að hafa ekki fengið fregnir af þessu en vafalaust er um að kenna bæði lélegu símasambandi þar sem ég var og eins því að netsambandið var heldur ekki of gott.

Guðmundur frændi var fæddur á Seyðisfirði 17. desember árið 1926 og var því liðlega tvítugur um það leiti sem ég kom í heiminn.  Svo lengi sem ég man var Guðmundur uppáhalds frændi minn og vinur.  Hann var í mjög mörgu mín fyrirmynd eða "idol-stjarna" eins og það er kallað núna. Alla mína barnæsku bjó hann í húsinu hjá afa og ömmu á Austurveginum og eftir að hann kvæntist Jónhildi þegar ég var 6 ára bjuggu þau sín fyrstu hjúskaparár þar. Guðmundur frændi var fyrirmynd mín á skíðum, hann var góður og kunnáttusamur ljósmyndari sem átti sína myrkrakompu og vann sínar myndir sjálfur. Hann smitaði mig af hvoru tveggja þó aldrei næði ég jafn góðum árangri og hann. Guðmundur Gíslason var einn vandaðisti maður sem ég hef kynnst. Hann var í Útvegsbankanum á Seyðisfirði með Theodóri afa og síðar Landsbankanum alla sína starfævi og þar sannaðist það á hverjum degi hversu vandaður hann var.  Ég á Guðmundi frænda margt að þakka og það er margs að minnast þegar ég lít yfir genginn veg en ég læt þetta nægja að sinni. Jónhildi, Guðrúnu Valdísi, Friðrik og Val sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Vertu sæll kæri frændi og takk fyrir samleiðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Gísli minn svona getur oft komið fyrir þá sérstaklega þegar slæmt samband er.  Man eftir þessu hér áður fyrr þegar engin nettenging var hér og síðan bara gleymdi fólk að láta okkur vita ef einhver okkur nákominn féll frá.  Stundum dálítið hvimleitt þegar við fórum e.t.v. að spyrja ættingja hvernig inn eða þessi hefði það.  Pínlegt.

Erum að koma heim 5 febr. Þórir hittir ykkur örugglega í hádegismat ef ég þekki hann rétt.  Ef til vill lít ég á ykkur líka.  Hver veit?

Ía Jóhannsdóttir, 19.1.2008 kl. 18:27

2 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Gísli Blöndal.

Ég votta þér og fjölskyldu þinni samúð mína vegna fráfalls frænda þíns Guðmundar Gíslasonar. Megi guð og gæfa vera með þér.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 19.1.2008 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband