Meira en nóg að gera

Skrifað frá Rhodos 22. maí 2007.

P5181351Það hefur verið meira en nóg að gera síðustu daga og verður svo áfram því við erum að fá fyrstu farþegana okkar á laugardaginn.  Við höfum verið að fara í skoðunarferðir, skoða hótelin, veitingastaðan og raunar allt annað sem máli skipti. 

Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að þetta lýtur betur en vel út. Mikið líf á svæðinu, allt troðfullt af góðum veitingastöðum og kaffihúsum og veðrið er fínt. Hvað viljum við meira? Næturlífið er enn ó kannað en mér skilst að það sé meira en nóg af því.  Ein gatan hér í Rhodosborg er kölluð Bar Street !!! Verður skoðað við fyrsta hentugleika.

Hef ekki haft tíma til að kíkja á fréttir að heiman en vissi að Geir var eitthvað að spjalla við Ingibjörgu og ég set allt mitt traust á Geir.

Ekki meira í bili. Næsta blogg eins fljótt og kostur er


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband