Af stað til Rhodos

Á morgun held ég til sumardvalar á Rhodos. Að þessu sinni er úthaldið fjórir mánuðir því áætluð heimkoma er 15. september.  Ég flýg á morgun til Pisa og gisti þar eina nótt en held síðan áfram þann 17. maí, fyrst til Rómar, frá Róm til Aþenu og þaðan áfram til Rhodos.  Ég hitti Þóru Katrínu í Róm en Hildur Ýr kemur síðan til okkar með fyrsta flugi frá Íslandi þann 26.  Við þrjú verðum fararstjórateymi Heimsferða á Rhodos í sumar.

Eins og ég hef sagt frá áður fór ég til Rhodos í skoðunar- og undirbúningsferð síðari hluta mars svo ég er ekki alveg ókunnugur þarna.  Verkefnið okkar fyrstu dagana verður að undirbúa komu fyrstu farþegana og reyna að sjá til þess að allt sé eins og það á að vera á hótelunum og eins að safna eins miklu af upplýsingum um allt sem máli skipti og komið geta gestum okkar að gagni.  Þessar upplýsingar setjum við í svokallaða "Heimsferðamöppu" sem verður á öllum okkar hótelum. Markmiðið með þessu er að farþegarnir okkar verði eins fljótir og mögulegt er að koma sér í "afslappað stuð".  Eins þurfum við að fara í allmargar skoðunarferðir til að sjá og sannreyna að þær henti farþegum okkar. Ferðirnar sem helst koma til greina eru; dagsferð til Marmaris í Tyrklandi, skemmtisigling til hinar fögru eyjar Symi, skoðunarferð um Rhodosborg, ferð til Lindos og dagsferð um eyjuna. Þá má ég ekki gleyma vatnsskemmtigarðinum Water Park sem ég nefndi í greininni minni um Rhodos hér á undan.

Íbúðin er uppiSvefnloftiðÉg verð búsettur í gamla bænum í Ialyssos og skoðaði íbúð þar þegar ég var það í mars. Þetta er ágætis íbúð á annarri hæð,  tvö herbergi, tvær hæðir (svolítið skondið). Niðri er eldhús, smá setkrókur og lítið baðherbergi en uppi er svefnherbergið undir súð. Þegar ég var þarna í vetur hitti ég gamla konu í næsta húsi sem var að hengja upp þvott - ég hugsa að ég semji við hana um þvottinn minn í sumar því lúxus eins og þvottavél er ekki í íbúðinni minni.  Frá þessu ágæta húsi er tiltölulega stutt að hótelunum okkar í Ialysson. 

Ég ætla að reyna að vera duglegur að blogga um það sem dagarnir bera í skauti sér - lofa samt ekki of miklu - sjáum til


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband